Betri Samgöngur ohf. á valdi Sjálfstæðisflokksins og SA.

Skoðun Guðmundur Hrafn Arngrímsson 2. feb 2023

Árni Matthiesen fyrrverandi fjármálaráðherra sagðist “ekki hafa hugmynd um af hverju hann var ráðinn sem stjórnarformaður Betri Samgangna ohf.”. er hann var spurður. Sagði hann jafnframt í viðtali við Kjarnann “að best væri að spyrja Bjarna Benediktsson að því”.

Kannski hefur Bjarni viljað að Eyjólfur Árni Rafnsson formaður Samtaka Atvinnulífsins og stjórnarmaður í fasteignafélaginu Eik ásamt Gunnari Einarssyni bæjarstjóra Garðabæjar og frambjóðandi sjálfstæðisflokksins hefðu tryggan félagsskap í stjórn fyrirtækisins. Þessir þrír félagar biðu ekki boðanna og tryggðu sér krafta Davíðs Þorlákssonar fyrrum forstöðumanns hjá Samtökum Atvinnulífsins og framkvæmdastjóra hins umdeilda fyrirtækis Lindarvatns ehf. til að leiða hið nýstofnaða hlutafélag.

Árni Matthiesen var fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokssins á árunum 2005 – 2009 og leiddi hann ásamt samstarfsfólki sínu land og þjóð í efnahagslegt hrun í árslok 2008 sem mörgum er eftirminnilegt. Í kjölfar þess að Sjálfstæðisflokkurinn var leiddur frá völdum snemma árs 2009 tók svo samtryggingakerfi stjórnmálanna hann upp á arminn og gerði hann að framkvæmdastjóra Matvæla- og Landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna og starfaði Árni þar þangað til að Bjarni skipaði hann í formennsku hjá Betri Samgöngum ohf.

Davíð, Halldór Benjamín og Lindarvatn.
Hinn nýráðni framkvæmdastjóri Davíð Þorláksson sem var um tíma formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna hefur meira og minna allan sinn feril athafnað sig innan stóru viðskiptablokka Sjálfstæðisflokksins og SA. Starfaði hann m.a. í góðum stöðum bæði hjá Viðskiptaráði og Icelandair Group. Davíð starfaði á hrun-árunum einnig sem yfirlögfræðingur hjá fjárfestingafélaginu Askar Capital sem varð eins og mörg fjárfestingafélög gjaldþrota fljótlega eftir hrunið. Hafði félagið verið stórtækt í milligöngum um lán í erlendum gjaldmiðlum til fyrirtækja og sveitarfélaga.

Það varð svo að eftirminnilegu fréttamáli þegar Halldór Benjamín Þorbergsson núverandi framkvæmdastjóri Samtaka Atvinnulífsins fékk fellda niður tuttugu og fimm milljón króna skuld við Milestone ehf. fyrirtæki Karls Wernerssonar, sem hann notaði til að fjárfesta í fyritæki Davíðs vinar síns, Askar Capital. Losaði Halldór Benjamín sig undan ábyrgð á láninu eins og fjórir samstarfsmenn hans með því að flytja lánin yfir í einkahlutafélög, sem svo voru gerð gjaldþrota. Hefur Halldór síðan verið nefndur sem hugsanlegt leiðtogaefni fyrir sjálfstæðisflokkinn.

Björgúlfur Jóhannsson, Guðrún Hafsteinsdóttir og Icelandair Group
En aftur að Davíð Þorlákssyni sem hefur það líka á ferilskránni að hafa verið verkefnastjóri hjá Háskólanum í Reykjavík og starfað fyrir EFTA. Nýtur hann liðsinnis fyrrum samstarfsmanns úr háskólanum, Þrösts Gunnarssonar á skrifstofu hins opinbera hlutafélags. Davíð var sjálfur í hringiðu vafasamra viðskipta líkt og vinur hans Halldór Benjamín vegna viðskiptfléttu sem skók fyrirtækið Lindarvatn ehf árið 2019. Í stuttu máli þá höfðu Lífeyrissjóðir lagt Icelandair group til 4 milljarða sem ætlað meðal var m.a. að fjármagna kaup Icelandair Group á félaginu Lindarvatn ehf. og verkefnum þess á Landsímareitnum. Icelandair Group var þá undir stjórn Björgúlfs Jóhannssonar sem á þeim tíma var einnig formaður Samtaka Atvinnulífsins.

Verðmæti Lindarvatns hafði þá á stuttum tíma fjórfaldast án nokkurrar verðmætaaukningar og samtímis gerði Icelandair Hotels 25 ára leigusamning við félagið. Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR mótmælti því að lífeyrissjóðirnir væru nýttir til slíks fjárausturs og gerviviðskipta. Barðist Ragnar hatrammlega við Guðrúnu Hafsteinsdóttur þáverandi stjórnarformann lífeyrissjóðs verslunarmanna sem varnaði því að Ragnari tækist að skipta um stjórnarmeðlimi í lífeyrissjóðnum og koma þannig í veg fyrir misnotkun á fjármunum sjóðsfélaga. Rétt áður en málið náði hámæli í fjölmiðlum réði Björgúlfur svo Davíð ásamt Halldór Benjamín til samtaka atvinnulífsins en Halldór hafði þá starfað í sjö ár sem framkvæmdarstjóri viðskiptaþróunar hjá Icelandair group undir stjórn Björgúlfs.


Bjarni Benediktsson, FME, Landic og fjármálaráðuneytið.
Hvort að SA eða Sjálfstæðisflokkurinn séu ekki mikið fyrir að upplýsa fulltrúa sína um af hverju þeir skuli sitja í stjórnum félaga í eigu almennings skal ósagt látið. Líklegast er að þau þekki einfaldlega og fullkomnlega erindi sitt. Bjarni Benediktsson hefur kannski ekki heldur haft fyrir því að upplýsa Hildigunni Hafsteinsdóttur fyrrum lögfræðings fjármálaeftilitsins né Guðrúnu Ögmundsdóttur sérfræðing og forstöðumann úr fjármálaráðuneytinu um erindi þeirra þegar þær voru skipaðar í stjórn Betri Samgangna ohf. Guðrún Ögmundsdóttir hefur reyndar töluverða reynslu af umsýslu fasteigna og innviða en hún starfaði sem fjárfestingatengiliður hjá fyrirtækinu Landic Property (áður Stoðir fasteignafélag). Landic Property var á tímabili var eitt stærsta fasteignafélag norðurlanda en Guðrún lauk þar störfum þegar félagið varð gjaldþrota árið 2010, en kröfur í þrotabúið voru 315 milljarðar.

Íslenska ríkið á sjötíu og fimm prósent í Betri Samgöngur ohf. og fer Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra með hlut ríkisins í félaginu. Tuttugu og fimm prósent er í eigu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Áætlað er að tekjur félagsins verði um tuttugu millljarðar af lóðasölu og sjötíu og fimm milljarðar tilkomnar með gjaldtöku af almenningi. Að auki leggja ríki og sveitarfélögin félaginu til 3.7 milljarða á ári.

Framtíð höfuðborgarsvæðisins í höndum SA.
Með samningi Betri Samgangna ohf. við sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hefur það tekið við yfirumsjón og eftirliti með uppbyggingu umferðamannvirkja á höfuðborgarsvæðinu sem og þróun íbúðauppbyggingar á keldnalandinu. Betri samgöngur ohf. sem er í höndum Sjálfstæðisflokksins, Samtaka Atvinnulífsins og fulltrúa þeirra sem eins og lýst er að ofan hafa margir verið viðriðnir mjög vafasama viðskiptahætti fer nú með stóran hluta af þróun höfuðborgarsvæðisins og þar með lífsskilyrðum og framtíð íbúa þess.

Yfir um og allt í kring svífa bæði andar og líkamar fyrirtækja og stofnana sem starfa undir forræði Sjálfstæðisflokksins og Samtaka Atvinnulífsins. Þarna koma líka við sögu EFTA, Fjármálaeftirlitið og Háskólinn í Reykjavík, en sú þrenning hefur einmitt skólað til þann einstakling sem nú vill bregða fæti fyrir kjarabaráttu láglaunafólks á höfuðborgarsvæðinu.

Guð hjálpi okkur.




Samstöðin er umræðu- og fréttavettvangur sem studdur er af almenningi í gegnum Alþýðufélagið. Ef þér líkar efni Samstöðvarinnar getur þú eflt hana með því að gerast einskonar áskrifandi sem félagi í Alþýðufélaginu.

Skrá mig arrow_forward
Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí