Frestum launahækkunum borgarfulltrúa!

Borgarstjórn má ekki fara í sumarfrí með launahækkanir í vasanum enn eina ferðina. Í ljósi verðbólgu og óvissu í efnahagslífinu verða kjörnir fulltrúar að leiða með góðu fordæmi og hafna hækkunum ofan á laun sem eru gríðarlega há.

Sósíalistar leggja því til að fyrirhuguðum launahækkunum um næstu mánaðamót verði frestað. Í kjölfarið verði farið í endurskoðun á fyrirkomulagin með það að leiðarljósi að koma á samfélagssátt um laun borgarfulltrúa. Niðurstöður þeirra vinnu liggji fyrir eigi síðar en 1. október 2023.

Laun borgarfulltrúa eru of há þar sem miðað er við greiðslur ofan á grunnlaun upp á 963.647 kr. Miða ætti við að launagreiðslur kjörinna fulltrúa dugi til framfærslu, en að sama skapi mega þau ekki vera svo há að þau dragi úr tengslum borgarfulltrúa við lífskjör almennings. Til þess að stuðla að samfélagssátt um laun borgarfulltrúa er mikilvægt að fundin verði leið sem veki sátt meðal borgarbúa.

Samstöðin er umræðu- og fréttavettvangur sem studdur er af almenningi í gegnum Alþýðufélagið. Ef þér líkar efni Samstöðvarinnar getur þú eflt hana með því að gerast einskonar áskrifandi sem félagi í Alþýðufélaginu.

Skrá mig arrow_forward
Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí