Meirihlutinn heldur að „þýska leiðin“ sé óraunhæf þrátt fyrir góðan árangur í Evrópu

Las í dag áhugaverða frétt á Samstöðinni en hún fjallar um leigumarkaðinn í Þýskalandi. Staðreyndirnar sem þar komu fram þóttu mér mjög áhugaverðar. Ekki síst þegar umgjörðin þar er borin saman við Ísland og Reykjavík. Ljóst er að við erum langt á eftir Þjóðverjum þegar kemur að hugmyndum og stefnum varðandi félagslegt húsnæði. Það sama gildir þegar við berum okkur saman við flest lönd í Evrópu.

Í fréttinni kemur fram að í Þýskalandi sé óheimilt að vísitölutengja leigu hjá þeim sem eru í félagslegu húsnæði. Sem er öfugt við það sem gengur og gerist hjá Félagsbústöðum. Þar að auki er leiguverð reiknað útfrá heimilistekjum leigjenda en við sósíalistar vorum með tillögu um svipaða útfærslu í vikunni. Því miður var ekki vilji til að skoða hana betur hjá fulltrúum meirihlutans.

Kannski ættum við að fara að kalla tillögur sósíalista „þýsku leiðirnar.” Hver veit nema að svoleiðis framsetning vekji áhuga hjá öðrum borgarfulltrúum því hingað til hafa tillögur sósíalista verið slegnar af borðinu. Gjarnan ýjað að því að við séum með óraunhæfar væntingar eða séum ekki að skilja hvernig málin virka. Við vitum betur en svo því ef aðrar borgir geta gert það sem við leggjum til, þá er það hægt.

Við í Reykjavík ættum að gera félagslegt húsnæði að þeim griðarstað sem hann á að vera. Skjól frá hinum grimma húsnæðismarkaði sem herjar á fleira fólk með hverjum deginum og við verðum nú að gefa í. Þá erum við að tala um verkefni eins og að byggja meira félagslegt og setja upp viðmið um hámarksleigu sem tengd væri við heimilistekjur. Þannig myndi fólk aldrei borga hærri leigu en sem nemur 25% af ráðstöfunartekjum. Það væri mikið sanngirnismál og félagslegt húsnæði væri þá í raun að standa undir nafni.

Vonandi bregðast samt fulltrúar meirihlutans betur við næst þegar sósíalistar leggja fram tillögur í anda Þýskalands. Ef þeir gefa sér meiri tíma til að skoða málin og sjá að þetta eru fullkomlega raunhæfar hugmyndir þá er ekkert því til fyrirstöðu að við förum af stað. Sósíalistar eru tilbúnir og vilja að leigjendur séu einnig með í öllum framtíðaráformum hvað varðar félagslega uppbyggingu.

Höfundur er borgarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands

Samstöðin er umræðu- og fréttavettvangur sem studdur er af almenningi í gegnum Alþýðufélagið. Ef þér líkar efni Samstöðvarinnar getur þú eflt hana með því að gerast einskonar áskrifandi sem félagi í Alþýðufélaginu.

Skrá mig arrow_forward
Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí