Nú ætlar meirihlutinn að einkavæða Ljósleiðarann

Í gær, þann 1. maí fögnuðu m.a. fulltrúar frá flokkum sem kenna sig við félagshyggju og jöfnuð deginum. Heyra mátti úr þeirra röðum að kjarabarátta almennings væri þeim hjartans mál. Háfleygar ræður voru fluttar og sérstaklega var tekið fram að það væri þeim að þakka hversu mikil réttindi launafólk hefði í dag. Í ljósi þess er mjög sérstakt, að ekki lengur en degi síðar ætli sömu flokkar að einkavæða stóran hlut af eigum almennings. Ljósleiðarinn er hluti af grunninnviðum sem hafa tryggt framfarir í lífsgæðum alls almennings, og að langstærstum hluta launafólks.

Þeir grunninnviðir sem byggðust upp á 20. öld voru forsenda þeirra lífsgæða sem við búum við í dag. Án vegakerfis, rafmagns og hitaveitu værum við ekki rík þjóð. Verkalýðsbarátta snerist ekki bara um launaumslagið, heldur líka það að stjórnvöld byggðu upp sterka innviði. Í því samhengi má líka nefna Ljósleiðarann sem Reykjavík komst á laggirnar í lok síðustu aldar. Tilgangur Ljósleiðarans er að koma interneti á heimili fólks. Þess hefur allt samfélagið notið góðs af.

Bara á því eina ári sem ég hef starfað í borgarstjórn hafa verk hins svokallaða Jafnaðarflokks verið í algjörri andstöðu við það sem nafn hans gefur til kynna. Leikskólar hafa verið einkavæddir, borgarskjalasafnið lagt niður, mat í leikskólum verið útvistað, harkalega skorið niður í skólum og frístund, biðlistar lengst hjá Félagsbústöðum og nú á að koma grunninnviðum í hendur einkaaðila. Félagshyggja? Jöfnuður?

Það er eitt að halda fínar ræður og skrifa háfleyga pistla þann 1. maí um mikilvægi verkalýðsbaráttu. Svo er annað hvaða verk eru unnin 2. maí og alla aðra daga ársins í þágu almennings og launafólks

Samstöðin er umræðu- og fréttavettvangur sem studdur er af almenningi í gegnum Alþýðufélagið. Ef þér líkar efni Samstöðvarinnar getur þú eflt hana með því að gerast einskonar áskrifandi sem félagi í Alþýðufélaginu.

Skrá mig arrow_forward
Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí