Vegakerfið er meira og minna styrkur til Samskipa, Eimskips og rútufyrirtækjanna

Skoðun Gunnar Smári Egilsson 18. feb 2025

Vegakerfið er illa farið, fyrst og fremst vegna umferðar flutningabíla og stórra fólksflutningabíla, sem eyða vegunum þúsundfalt á við fólksbíla.

Í svari samgönguráðuneytisins við fyrirspurn á Alþingi árið 2008 kom fram að ein ferð flutningabíls án tengivagns með 80% hleðslu gæti valdið svipuðum niðurbrotsáhrifum og 9.000 ferðir 1.800 kg. fólksbifreiðar og að ein ferð flutningabíls með tengivagn og 80% hleðslu gæti valdið svipuðum niðurbrotsáhrifum og 12.000 ferðir 1.800 kg. fólksbifreiðar.

Dagleg meðaltalsumferð eftir Borgarfjarðarbraut á sumrin eru 2700 bílar á sólarhring. Einn flutningabíll spænir því upp slitlagi í einni ferð eins og öll umferð fólksbíla á hálfri viku. Eftir þessum vegi keyra fjöldamargir flutningabílar á hverjum degi svo augljóst er að umferð fólksbíla skiptir eiginlega sáralitlu ef nokkru máli í samanburði við þungaflutninga Samskipa og Eimskips og keyrslu fólksflutningabíla með ferðamenn.

Yfir Hellisheiði fara á sumrin um 14 þúsund bílar á sólarhring. Allir fólksbílarnir eyða álíka og einn af flutningabílunum með tengivagn. Og flutningabílarnir sem keyra yfir heiðina skipta tugum.

Niður Bröttubrekku keyra um 1050 bílar að meðaltali á sumrin á hverjum degi. Þar af eru nokkrir flutningabílar drekkhlaðnir eldislaxi úr sjókvíum Vestfjarða. Þeir flutningar eru svo veigamiklir að fiskeldisfyrirtæki ættu í reynd ein að borga viðhald og uppbyggingu þessa vegar.

Stundum er því haldið fram að réttlátt sé að þeir borgi sem nota. Þetta er mandra þeirra sem vilja leggja á vegatolla. Þeir segja að réttlátt sé að þeir sem noti vegina borgi fyrir þá. Ef það er réttlátt ætti að senda reikning fyrir viðhaldi og endurnýjun vegakerfisins til Eimskips (þar sem Samherji er stærsti eigandinn), Samskipa (þar sem Ólafur Ólafsson er aðaleigandi), til laxeldisfyrirtækja á Vestfjörðum, rútufyrirtækja og þeirra sem eyða upp slitlaginu. Það er fráleitt að allur almenningur sé að styrkja þessa aðila um marga milljarða króna á hverju ári og láta það óátalið að þeir séu að eyðileggja vegina okkar endurgjaldslaust.

Samstöðin er umræðu- og fréttavettvangur sem studdur er af almenningi í gegnum Alþýðufélagið. Ef þér líkar efni Samstöðvarinnar getur þú eflt hana með því að gerast einskonar áskrifandi sem félagi í Alþýðufélaginu.

Skrá mig arrow_forward
Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí