Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

Ungt fólk í basli, upplausn í Frakklandi, fangelsi, fólk sem heyrir raddir, fátækt og Innkaupapokinn

Ungt fólk í basli, upplausn í Frakklandi, fangelsi, fólk sem heyrir raddir, fátækt og Innkaupapokinnarrow_forward

S06 E151 — 09/11/2025

Sérstök ástæða er til að gefa hlutskipti ungra Íslendinga gaum er kemur að menntun þeirra og misjöfnum ávinningi. Sigrún Brynjarsdóttir, hagfræðingur hjá BHM ræðir við Björn Þorláks hvort það borgi sig að vanmeta menntun. Einar Már Jónsson prófessor ræðir við Gunnar Smára um stjórnarkreppu í Frakkandi, upplausn, mótmæli og vaxandi vantrú landsmanna á stjórnmálafólki. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Þóru Björg Sirrýjardóttur námsmann og Ingólf Snæ Víðisson stuðningfulltrúa og starfsmann Afstöðu. Stjórnarmenn í Hearing Voices Iceland og starfsmenn Hugarafls, þau Sigrún Huld Sigrúnar, leikari, raddheyrari og Grétar Björnsson félagsfræðingur segja Gunnari Smára frá fólki sem heyrir raddir sem aðrir heyra ekki og sjá sýnir sem aðrir ekki sjá. Sæunn Guðmundsdóttir, einn stofnenda Norðurhjálpar á Akureyri, segir fátækt mjög falið mein og að fátækir eigi sér fáa málsvara. Fólk á leigumarkaði og öryrkjar eru í hópi hinna verst stöddu. Björn Þorláks ræðir við Sæunni. Gunnar Smári ræðir við Friðgeir Einarsson um Innkaupapokann sem leikhópurinn Kriðpleir setur upp í Borgarleikhúsinu og Elísabetu Jökulsdóttur, en inn í Innkaupapokanum er flutt leikrit hennar Mundu töfrana.

Gaza, sjálfsvíg, reynsluboltar, Fjallabak og söngkennsla

Gaza, sjálfsvíg, reynsluboltar, Fjallabak og söngkennslaarrow_forward

S06 E150 — 09/10/2025

Helen Ólafsdóttir öryggissérfræðingur ræðir við Gunnar Smára um kröfur á íslensk stjórnvöld um aðgerðir gegn Ísrael vegna þjóðarmorðsins á Gaza. Metur ríkisstjórnin það svo að Bandaríkin muni beita okkur refsingum ef við beitum Ísrael aðgerðum sem geta bitið? Gunnar Smári ræðir við fjóra karla af mismunandi kynslóðum, Anton Ísak Óskarsson, Ármann Örn Bjarnason, Baldvin Frederiksen og Bjarni Karlsson, um sjálfsvíg og áhrif þeirra á aðstandendur. Hvernig glíma karlar við sorg og dauða? Sigurjón fékk til sín þrjá góða gesti; Steingerði Steinarsdóttur, Lárus Guðmundsson og Ólaf Arnarson. Þau töluðu um margt. T.d. Hvað Rússum gengur til að ógna Póllandi, Miðflokkinn og Snorra Másson, fjárlagafrumvarpið, ræðu forseta Íslands við þingsetninguna og sitt hvað fleira. Gunnar Smári fór á Fjallabak og í Borgarleikhúsinu, leikrit  kl byggt á smásögu sem líka gat af sér bíómyndina Brokeback Mountain. Valur Freyr Einarsson leikstjóri og leikararnir Hjörtur Jóhann Jónsson og Björn Stefánsson koma að Rauða borðinu og ræða erindi og inntak þessarar sögu af ungum mönnum sem fella saman hugi í samfélagi sem vill ekki viðurkenna ást þeirra. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir söngkona og skólastjóri Söngskólans ræðir leiðir til að minnka efnahagslega stéttaskiptingu í tónlistarnámi barna og koma fleiri börnum í nám. Björn Þorláks ræðir við hana.

Lagaleg álitaefni, heimsmálin, fjárlög, flughávaði og listrænir feðgar

Lagaleg álitaefni, heimsmálin, fjárlög, flughávaði og listrænir feðgararrow_forward

S06 E149 — 09/09/2025

Við hefjum leik á liðnum Réttur er settur. Gísli Tryggvason lögmaður ræðir fréttir í samhengi við lagaleg álitaefni. Í dag verður drepið á Eurovision, rétti rjúpnaveiðimanna til veiða, ólíkra stjórnarskráa nágrannalanda og fleira. Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hagfræðingur BSRB og Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur Visku ræða við Gunnar Smára um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, það sem er gott í því og vont og það sem vantar í frumvarpið. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir um heimsmálin við Gunnar Smára og afstöðu ríkisstjórnarinnar til þeirra. Er það hagur Íslands að setja á refsitolla á Kína og Indland? Hvaða áhrif munu ólíkar áherslur Bandaríkjanna og Evrópuríkjanna innan Nató hafa? Það er ekki á hverjum degi sem fjölskyldumeðlimir leika listir sínar í sama galleríi. Feðgarnir Hlynur Hallsson og Númi Hlynsson setja upp sameiginlega myndlistarsýningu fyrir norðan á Akureyri, við ræðum við þá. Við endum þáttinn á umræðu um stóraukið einkaflug við Reykjavíkurflugvöll, ekki síst þyrluflug. Ólafur Hjálmarsson hljóðverkfræðingur segir mörg álitamál í þeim efnum, rannsóknir sýna að viðhorf til flugs skiptir miklu hvernig íbúar í grennd upplifa hávaða. Þannig er ekki ólíklegt að úrsýnisflug vegna eldgoss valdi meiri pirringi og annars konar líðan hjá íbúum en björgun mannslífs.

Þjóð gegn þjóðarmorði, stjórnmálaveturinn, örorkukerfið og barnafátækt

Þjóð gegn þjóðarmorði, stjórnmálaveturinn, örorkukerfið og barnafátæktarrow_forward

S06 E148 — 09/08/2025

Ragnheiður Steindórsdóttir, leikkona og stjórnarkona hjá Vonarbrú, Arna Magnea Danks, kennari, Sara Stef Hildar, baráttukona, Ólafur Ólafsson, myndlistamaður og einn skipuleggjenda fundarins „þjóð gegn þjóðarmorði“ sem haldin var um helgina ræða framhaldið við Maríu Lilju. Guðmundur Hrafn Arngrímsson, sem skipaði oddvitasæti hjá sósíalistum, telur rétt að stofna nýtt vinstri sinnað stjórnmálaafl þar sem kjósendur VG, pírata og sósíalista gæti hagsmuna sinna.  Þetta kemur fram í umræðu um stjórnmálaveturinn fram undan í umsjá Björns Þorláks. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, pírötum, lýsir sig jákvæða gagnart nýju afli – fremur en sameiningu hinna eldri. Svava Arnardóttir formaður Geðhjálpar, Alma Ýr Ingólfsdóttir formaður ÖBÍ og Unnur Helga Óttarsdóttir formaður Þroskahjálpar ræða við Gunnar Smára um breytingarnar sem gerðar voru á örorkulífeyri fyrir viku. Tótla I Sæmundsdóttir hjá Barnaheillum ræðir mál sem varða velferð barna, mismunum eftir efnahag og mikilvægi þess að aðgát skal hörð í nærveru sálar svo nokkuð sé nefnt. Björn Þorláks ræðir við hana.

Helgi-spjall: Lára Pálsdóttir

Helgi-spjall: Lára Pálsdóttirarrow_forward

S06 E147 — 09/06/2025

Lára Pálsdóttir félagsráðgjafi segir frá fólkinu sínu, Jesús ömmu sinnar og sósíalisma afa, frá þolinmæði mömmu sinnar og alkóhólisma föðurs, frá uppreisnum sínum sem unglingur, ást á bókum, æskulýðsskóla í Sovét, sárum missi og að fá að fæðast á ný.

Vikuskammtur: Vika 36

Vikuskammtur: Vika 36arrow_forward

S06 E146 — 09/05/2025

Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Atli Bollason myndlistarmaður, Brynja Cortes Andrésdóttir þýðandi, Hye Joung Park myndlistarkona og kennari og María Hjálmtýsdóttir kennari og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af upphlaupum, hneykslun, pólitískum hræringum, stríði og engum frið.

Fjárhagslegt ofbeldi, alzheimer, neytendur, Flokkur fólksins og tónlist

Fjárhagslegt ofbeldi, alzheimer, neytendur, Flokkur fólksins og tónlistarrow_forward

S06 E145 — 09/04/2025

Sæunn Marínósdóttir, þolandi fjárhagslegs ofbeldis af hendi fyrrum maka segir sögu sína og hvernig kerfið býður uppá og hjálpar beinlínis gerendum ofbeldis. María Lilja ræðir við hana. Ragnheiður Davíðsdóttir ræðir við Kristínu Kristófersdóttur um alzheimer. Hún er eiginkona manns með sjúkdóminn sem greindist 52ja ára gamall. Breki Karlsson hjá Neytendasamtökunum ræðir gríðarháa stjórnvaldssekt á norskum matvörumarkaði, færslugjöld, rétt sundlaugargesta til bóta ef viðhald kallar á lokun sundlauga, ofurvexti og fleira í Neytendahorninu með Birni Þorláks. Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, ræðir stöðu eigin flokks og þingveturinn fram undan. Stefnir í átakatímabil? Björn Þorláks ræðir við Sigurjón. Björn Þorláksson ræðir við Tryggva M Baldvinsson tónskáld um tónsköpun, listina og lífið.

Kastljós, hafstraumar, Sjálfstæðisflokkurinn, reynsluboltar og mótmælendur

Kastljós, hafstraumar, Sjálfstæðisflokkurinn, reynsluboltar og mótmælendurarrow_forward

S06 E144 — 09/03/2025

Það veldur umtalsverðri vanlíðan hjá aðstandendum trans fólks að hlusta á vanstillta orðræðu Snorra Mássonar og sjá undirtektirnar. Þetta segir Þórgnýr Dýrfjörð, faðir transeinstaklings í samtali við Björn Þorláksson. Stefán Jón Hafstein sem hefur skrifað mikið um umhverfismál ræðir ögurstundina sem nú er uppi. Miklu varðar að Íslendingar ekki síður en aðrar þjóðir breyti hegðun sinni til að vernda hlýja hafstrauma og fleira. Björn Þorláks ræðir við Stefán. Reynsluboltar Sigurjóns Magnússonar verða á dagskrá en þar ræðir folk þjóðmálin. Gestir þáttarins eru Guðmundur Þ. Ragnarsson, Vilborg Oddsdóttir, Margrét Sanders og Þorsteinn Sæmundsson. Lögregluaðgerðir við Hlemm-Mathöll. María Lilja ræddi við vitni. Vilhjálmur Bjarnason fyrrum þingmaður segir sinn gamla flokk, Sjálfstæðisflokkinn óþekkjanlegan. Hann segir minnkandi ítök valdaflokkanna gömlu eiga sér skýringar sem hann ræðir í samtali við Björn Þorláksson. Og við endum þáttinn á ofbeldi gegn mótmælendum. Daníel Thor Bjarnason, Helga Ögmundardóttir og Margrét Baldursdóttir eru öll virk í hreyfingunni fyrir frjálsri Palestínu. Þau lýsa fyrir Maríu Lilju hvernig þau hafa öll orðið fyrir líkamlegu ofbeldi á mótmælum undanfarið og hvernig lögregla og fjölmiðlar eiga þátt.

Hafstraumar, popúlismi, Píratar, rasismi, verðleikasamfélag og þétt byggð

Hafstraumar, popúlismi, Píratar, rasismi, verðleikasamfélag og þétt byggðarrow_forward

S06 E143 — 09/02/2025

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur ræðir við Gunnar Smára um fyrirsjáanlegt hrun hagstrauma í Atlandshafi sem mun leiða einskonar ísöld yfir Ísland. Er þetta mögulegt, ólíklegt eða næsta víst. Helen María Ólafsdóttir, öryggissérfræðingur varar við því að orðræða og framkoma Snorra Mássonar í Kastljósi í gærkvöld sé undanfari einhvers annars og mun alvarlegra. Hún ræðir við Maríu Lilju. Fyrirhugaðar eru róttækar breytingar á stjórnskipun pírata. Björn Leví Gunnarsson, fyrrum þingmaður, vill að hvorki sósíalistar, VG né píratar bjóði fram til að þrýsta á umbætur svo að fylgisþröskuldur verði lækkaður. Björn Þorláks ræðir við hann. Sóley Lóa Smáradóttir, nemi skrifaði áhrifamikinn pistil á dögunum sem farið hefur víða um öráreiti og hversdags-fórdóma sem brúnir og svartir Íslendingar verða fyrir. Sóley ræðir við Maríu Lilju um leiðir að betra samfélagi fyrir öll. Eyja Margrét Jóhönnu Brynjarsdóttir prófessor í heimspeki ræðir um verðleikasamfélagið við Gunnar Smára; hugmyndina um að þau sem auðgast og ná langt geri það vegna eigin verðleika. Og þau sem eru fátæk og óséð séu það vegna skorts á verðleikum. Einar Sveinbjörn Guðmundsson varaborgarfulltrúi Flokks fólksins telur að þétting byggðar hafi verið of mikil í borginni. Hann telur óvarlegt að reikna með minni bílaumferð í samtali við Björn Þorláks.

Verðbólga, sósíalistar, Brics, Gufunesmálið og leigubílar

Verðbólga, sósíalistar, Brics, Gufunesmálið og leigubílararrow_forward

S06 E142 — 09/01/2025

Stefán Ólafsson prófessor og ráðgjafi Eflingar fer yfir stöðuna í efnahagsmálum í samtali við Gunnar Smára. Virkar hávaxtastefna Seðlabankans, mun verðbólgan éta upp kaupmáttinn og þarf stóraðgerðir í húsnæðismálum? Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi svarar fyrir vantrauststillögu sem borin var upp gegn henni af samflokksmönnum úr Sósíalistaflokknum fyrir helgi. María Lilja ræðir við hana. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer í samtali við Gunnar Smára yfir fund leiðtoga Kína, Indlands og Rússlands í kjölfar þess að ríkisstjórn Trump lagði refsitolla á Indland. Mun sú aðgerð veikja stöðu Bandaríkjanna og í raun styrkja stöðu Rússlands? Ákveðin skautun er að verða í afstöðu Íslendinga til ofbeldismála. Þetta segir Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur en hann ræðir Gufunesmálið svokallaða, sumpart mjög sérstakt mál, í samtali við Björn Þorláks. Ekki er allt sem sýnist í umræðunni um starfsemi leigubíla segir framkvæmdastjóri og lögmaður hjá Hopp. Vandinn sé meintur og hreint ekki einyrkjum eða útlendingum um að kenna. María Lilja ræðir við Daníel Thors, framkvæmdastjóra hjá Hopp leigubílum.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí