Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

Gaza, Cecot, 500 milljarðar, tollar, Ástralía og fangelsi

Gaza, Cecot, 500 milljarðar, tollar, Ástralía og fangelsiarrow_forward

S06 E063 — 05/05/2025

Ísraelsstjórn samþykkti í morgun áætlun um að herða hernaðaraðgerðir á Gaza og leggja alfarið undir sig landsvæðið. Stjórnin hvatti íbúa til að færa sig til suðurs og von er á miklum blóðsúthellingum. Ingólfur Gíslason, kennari við menntavísindasvið er vel inni í málunum og ræðir við Maríu Lilju um nýjustu fréttir frá svæðinu. Þórður Snær Júlíusson, framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar ræðir við Sigurjón M um hve flókið það virðist að eiga næstum 500 milljarða króna á Ís­landi amk fyrir stórútgerðina. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, efast um rétt Bandaríkjamanna á réttlátri málsmeðferð, eins og stjórnarskrá Bandaríkjanna kveður á um. Hann hefur sent hundruði “ólöglegra innflytjenda” í öryggisfangelsið Cecot í el Salvador. Eyjólfur Eyvindsson, tónlistamaður er sérfróður um fangelsið og ræðir við Maríu Lilju. Þorsteinn Þorgeirsson hagfræðingur ræðir við Gunnar Smára um tolla og efnahagsstefnu Donald Trump, sem hann segir að byggi á hagfræðikenningum Ravi Batra og sé raunhæf leið til að vinna gegn ójöfnuði í Bandaríkjunum. Páll Þórðarson efnafræðiprófessor í Sydney segir Gunnari Smára frá kosningabaráttunni í Ástralíu þar sem mikill viðsnúningur varð, það sem leit út fyrir að geta orðið stórsigur íhaldsmanna varð á endanum sögulegur ósigur. Er þetta enn eitt merkið um áhrifin af Trump, sem virðist hafa kallað bakslag yfir nýja hægrið. Guðmundur Ingi Þóroddsson, formaður Afstöðu – félags fanga, tekur að sér leiðsegja Gunnari Smára um yfirfull fangelsi og langa biðlista. Hverjir sitja í fangelsi sem ekki ættu að vera þar og hverjir komast ekki í afplánun?

Helgi-spjall: GVA

Helgi-spjall: GVAarrow_forward

S06 E062 — 05/03/2025

Gunnar V. Andrésson ræðir um æsku sína og uppruna og samfélagið sem hann skráði sem ljósmyndari í rúma hálfa öld, en stór sýning með myndum hans sem blaðaljósmyndari verður opnuð í Ljósmyndasafninu í dag.

Vikuskammtur: Vika 18

Vikuskammtur: Vika 18arrow_forward

S06 E061 — 05/02/2025

Stór fréttavika að baki og margt að ræða. Ásamt Maríu Lilju mæta til borðs þau: Guðný S. Bjarnadóttir, stjórnarformaður Vitundar, samtaka gegn kynbundu ofbeldi, Pétur Eggerz tæknistjóri og aðgerðasinni, Birkir Fjalar Viðarsson, metalhaus og þreyttur faðir og Helga Þórey Jónsdóttir, kennari og menningarfræðingur.

Njósnir, reynsluboltar, Stormur, Húsavíkurradíó og múslimahatur

Njósnir, reynsluboltar, Stormur, Húsavíkurradíó og múslimahaturarrow_forward

S05 E060 — 04/30/2025

Vilhjálmur Bjarnason ræðir við Sigurjón M. um mál málanna þennan miðvikudaginn, afhjúpun Kveiks en Vilhjálmur er einn þeirra sem voru óafvitandi um nokkurt skeið undir vökulu auga njósateymis á vegum Björgólfs Thors. Reynsluboltar Sigurjóns M. að þessu sinni eru þau Þórunn Sigurðardóttir, Margrét Saunders og Páll Magnússon. Þau ræða hitamálin í samfélaginu, útgerðina og margt fleira. Una Torfa og Unnur Ösp Stefánsdóttir sömdu söngleikinn Storm sem Þjóðleikhúsið sýnir. Gunnar Smári og Sóley Lóa Smáradóttir ræða við þær um sýninguna, en ekki ungu kynslóðina sem verkið fjallar um. Aðalsteinn Árni Baldursson verkalýðsforingi á Húsavík ræðir við Björn Þorláks á zoom um stöðu atvinnumála, verkalýðshátíðina á morgun og fleira. Hjónin Mahdya Malik og Mansoor Malik mæta til Maríu Lilju og halda áfram samtalinu um útlendingaandúð og aukna hatursorðræðu í garð múslima eftir mikla dreifingu falsfréttar af kynferðisbroti á dögunum.

Blaðamenn, gervigreind, Trump, Hafró, bólusetningar og pílagrímar

Blaðamenn, gervigreind, Trump, Hafró, bólusetningar og pílagrímararrow_forward

S06 E059 — 04/29/2025

Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins ræðir harða gagnrýni á rekstur félagsins og veika stöðu blaðamennsku. Pólitísk afskipti af fréttamennsku, fjölmiðlastyrkir og fleira verður til umræðu í samtali hennar við Björn Þorláksson. Þórhallur Magnússon, rannsóknarprófessor og tónlistarmaður, sérfræðingur í skapandi gervigreindarfræðum, ræðir við Oddnýju Eir um hver muni eiga og stjórna gervigreindinni. Haraldur Sigurðsson jarðfræðingur hefur búið í Bandaríkjunum í rúma hálfa öld. Gunnar Smári hringir í hann og spyr hvernig honum líði í ríki Trump. Jón Kristjánsson fiskifræðingur hefur aldrei verið skeptískari á fiskveiðistjórnun og gengur svo langt að tala um hryðjuverk í því samhengi. Björn Þorláks ræðir við hann um stofna sem éta sjálfa sig og meint úrræða- og þjónustuleysi Hafró. Kristjana Hrönn Ásbjörnsdóttir, faraldsfræðingur við Háskóla Íslands, ræðir um bólusetningar og helstu áskoranir og deilur þeim tengdar við Oddnýju Eir. Ólafur Ingólfsson jarðfræðingur hefur gefið út bók um andlega vakningu sem hann varð fyrir þegar hann fór í ansi langan göngutúr. Einelti á vinnustað leiddi til þess að hann gekk 2.200 kílómetra.

Kynferðisbrot, óréttmæt vitnisburðarvæðing, fjölmiðlar og bókmenntahátíð 

Kynferðisbrot, óréttmæt vitnisburðarvæðing, fjölmiðlar og bókmenntahátíð arrow_forward

S06 E058 — 04/28/2025

Margrét Valdimarsdóttir, afbrotafræðingur og Drífa Snædal, talskona Stígamóta ræða við Maríu Lilju um brotatíðni nauðgunarmála og útlendingaandúð. Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson, heimspekingur og ritstjóri Hugar ræðir við Oddnýju Eir meðal annars um dómstól götunnar og óréttmæta vitnisburðarvæðingu en einnig um umræðuna í samfélaginu. Umræða um fjölmiðla er á sínum stað eins og alltaf á mánudögum. Ágúst Borgþór Sverrisson, fréttastjóri DV, ræðir í samtali við Björn Þorláks gagnrýni á blaðamenn í viðkvæmum fréttamálum. Einnig hvernig auka megi fjölmiðlalæsi almennings og stofnana. Að lokum færa þau Valur Gunnarsson, Maó Alheimsdóttir og Jórunn Sigurðardóttir Oddnýju Eir fréttir frá Bókmenntahátíð sem fram fór um helgina.

Helgi-spjall: Heiða Björg

Helgi-spjall: Heiða Björgarrow_forward

S06 E057 — 04/26/2025

Heiða Björg Hilmisdóttir, Borgarstjóri mætir á persónulegu nótunum í Helgi-spjall hjá Maríu Lilju. Skemmtilegt samtal um sveitastúlku sem verður að Borgarstjóra, áskoranir móður langveiks barns, næringarfræði, grænt gímald, flóttafólk og hlutverk borgarinnar í friðarumleitunum í veröldinni.

Vikuskammtur: Vika 17

Vikuskammtur: Vika 17arrow_forward

S06 E056 — 04/25/2025

Í Vikuskammti við Rauða borðið sitja í dag þau Steinar Harðarson, athafnastjóri hjá Siðmennt og gjaldkeri Vg, Helga Arnardóttir fjölmiðla- og kvikmyndagerðarkona, Margrét Helga Erlingsdóttir fréttakona og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af deilum og átökum um grundvallarþætti samfélagsins, mannréttindi og frelsi.

Reynsluboltar, sumar-áformin, óþekkti þingmaðurinn, Dýrið og sagnvandamálin

Reynsluboltar, sumar-áformin, óþekkti þingmaðurinn, Dýrið og sagnvandamálinarrow_forward

S06 E055 — 04/23/2025

Við hefjum samræðuna við Rauða borð kvöldsins á Reynsluboltunum. Sigurjón Magnús Egilsson fær til sín fína gesti, þau Oddnýju Harðardóttur, Lárus Guðmundsson, Jakob Frímann Magnússon og Ragnheiði Ríkharðsdóttur. Þau ræða um mannlífið, pólitíkina hér og erlendis og margt annað, veiðigjöld, skólamat, páfa. María Lilja tók miðbæjarbúana tali á síðasta vetrardegi og spurði um sumar-áform og skil. Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mætir til Björns Þorlákssonar sem óþekkti þingmaðurinn í kvöld. Ólafur er nýr þingmaður og hefur frá mörgu að segja. Við fræðumst síðan um Dýrið, nýstofnuð hagsmunasamtök mótmælenda en María Lilja fær til sín Daníel Thor Bjarnason en hann er einn af nímenningunum sem kærðu ríkið, sem var síðar sýknað, fyrir lögregluofbeldi á mótmælum í Skuggasundi. Í bridgeþætti Samstöðvar verður rætt við þá Ómar Olgeirsson og Guðmund Snorrason, sem báðir hafa spilað í íslenska landsliðinu. Þeir eru jafnframt báðir að fara að spila í úrslitum Íslandsmótsins í sveitakeppni sem hefjast á morgun. Í spjalli við Björn Þorláks ræða þeir félagar það helsta í undankeppninni á dögunum. Þá verða tvö sagnvandamál krufin.

Flóttabarn, páfi, kvóti, kvikmyndaskóli, ljósvíkingar og torfbæir

Flóttabarn, páfi, kvóti, kvikmyndaskóli, ljósvíkingar og torfbæirarrow_forward

S06 E054 — 04/22/2025

María Lilja fer með okkur á mótmæli við dómsmálaráðuneytið vegna brottvísunar Oscar Anders Florez Bocanegra, sautján ára kólumbísks drengs. Gunnar Smári ræðir við Pétur Pétursson guðfræðiprófessor um Frans páfa, sem Pétur hitti á sínum tíma og sem hafði mikil áhrif á hann eins og heiminn allan. Björn Ólafsson, útgerðartæknir og fyrrum sjómaður, gagnrýnir forstjóra Hafró og ósannindi sem tengjast loðnu, humar og þorski í samtali við Björn Þorláks. Böðvar Bjarki Pétursson stofnandi um Kvikmyndaskólann segir Gunnari Smára sögu skólans, sem hann segir að hafi verið drepinn af embættismönnum. Trans-fréttaritari Rauða borðsins, Arna Magnea Danks, mannréttinda-aktívisti, áhættuleikstjóri og leikkona, ræðir við Oddnýju Eir um myndina Ljósvíkingar. Sigurjón B. Hafsteinsson, prófessor við Háskólann og mannfræðingur, segir Birni Þorláks frá því þegar torfbæir voru víðast hvar jafnaðir við jörðu á öld steinsteypunnar.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí