Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

Sjókvíaeldi, ESB, húsnæðiskrísa, neytendur, smáfyrirtæki og Gaza

Sjókvíaeldi, ESB, húsnæðiskrísa, neytendur, smáfyrirtæki og Gazaarrow_forward

S05 E241 — 11/21/2024

Í beina útsendingu í kvöld mæta vaskir frambjóðendur og talsmenn, þau Karl Héðinn Kristjánsson, Sósíalisti, Gísli Rafn Ólafsson, Pírati, Mörður Árnason, Samfylkingu og Björg Eva Erlendsdóttir, Landvernd til að ræða um sjókvíeldi, eldgos og önnur eldheit kosningamál. Þau Haraldur Ólafsson hjá Heimssýn og Helga Vala Helgadóttir hjá Evrópuvaktinni eru á öndverðum meiði um hvort Ísland eigi að ganga í ESB. Við heyrum rökræðu þeirra á millum. Við höldum síðan áfram að ræða húsnæðiskrísuna á markvissan máta með fulltrúa Leigjendsamtakanna, Yngva Ómari Sighvatssyni sem tekur frambjóðendur nokkura flokka í próf og í dag mæta þeir Jóhann Páll Jóhannsson, frambjóðandi Samfylkingarinnar, Grímur Grímsson, frambjóðandi Viðreisnar og Ragnar Þór Ingólfsson, frambjóðandi Flokks fólksins. Spurning dagsins er hvernig líður almenningi í samfélaginu, við spyrjum fólk á förnum vegi. Síðan segir Sigmar Vilhjálmsson, formaður Atvinnufélagsins okkur frá hvernig skattaumhverfi fyrirtækja hyglir hinum stóru á kostnað smáfyrirtækja og Benjamín Julian, verkefnastjóri Verðlagseftirlits Alþýðusambandsins, fræðir okkur um samkeppnina á dagvörumarkaði. Illugi Jökulsson, rithöfundur segir okkur frá allri fegurðinni sem finna má í hversdeginum en hann hefur í nokkur ár fangað lítil augnablik, glefsur úr lífum fólks og gefið út í bókinni ,,Rétt áðan.“ Í Radió Gaza koma þau saman Gígja Sara Björnsson, Valgeir Skorri Vernharðsson, Hjálmtýr Heiðdal og Snæbjörn Brynjarsson sem öll standa fyrir viðburðum á næstu vikum. Áherslurnar og aðferðirnar eru kannski ólíkar en meginstefið er það sama, mannréttindi. Að lokum heyrum við í oddvita Sósíalista í Norðvesturkjördæmi, Guðmundi Hrafni Arngrímssyni sem spjallar við Sigurjón Magnús Egilsson í Oddvitaspjalli Rauða borðsins.

Kosningar, almenningur, húsnæði og Davíð Þór

Kosningar, almenningur, húsnæði og Davíð Þórarrow_forward

S05 E240 — 11/20/2024

Gísli Tryggvason lögmaður, Atli Þór Fanndal almannatengill, Kristín Eiríksdóttir skáld og Sunna Sæmundsdóttir fréttakona koma að Rauða borðinu og greina kosningabaráttu sem er uppfull af hneykslum. Almenningur verður spurður og Oddný Eir Ævarsdóttir fær Yngva Ómar Sighvatsson frá Leigjendasamtökunum til að yfirheyra frambjóðendur um húsnæðismál og athuga hvað flokkarnir bjóða upp á sem alvöru lausn í húsnæðiskrísunni miklu. Björn Leví Gunnarsson þingmaður Pírata, Ágúst Bjarni Garðarsson, þingmaður Framsóknar og Guðmundur Hrafn Arngrímsson frambjóðandi Sósíalistaríða á vaðið og takast á við vandann. Í lokin ræðir Sigurjón Magnús Egilsson við Davíð Þór Jónsson prest og oddvita Sósíalista í Suðvesturkjördæmi.

Kosningar, verkföll,  hvalveiðar og Gunnar blaðasali

Kosningar, verkföll,  hvalveiðar og Gunnar blaðasaliarrow_forward

S05 E239 — 11/19/2024

Kristín Vala Ragnarsdóttir, Starkaður Björnsson MR-nemi í verkfalli, Tómas Ellert Tómasson byggingaverkfræðingur og Jasmína Vajzovic baráttukona sem flutti til hins fyrirheitna Íslands verða gestir Björns Þorlákssonar í beinni útsendingu. Þau ræða pólitíkina og samfélagið. Þau Vilhjálmur Birgisson verkalýðsforkólfur og Vala Árnadóttir hvalfriðunarsinni koma svo og rökræða hvort veiða eigi hval eða ekki. Meint spilling inni í matvælaráðuneytinu verður sérstaklega til umræðu. Sigurjón Magnús Egilsson kemur svo og ræðir við Rán Reynisdóttur frambjóðanda sósíalista. Vigdís Grímsdóttir, rithöfundur og Oddný Eir ræða við Kristínu Ómarsdóttur um nýjustu bók hennar Móðurást, Draumþing, um ömmurnar og karlana og lífið í skáldskapnum. Og við ljúkum þættinum á spjalli Gunnars Smára Egilssonar við Gunnar Val Gunnarsson Jensen fyrrum blaðasala, sem segir frá lífi sínu og skoðunum.

Skandalar, búvöruhneyksli, fiskur og spilling

Skandalar, búvöruhneyksli, fiskur og spillingarrow_forward

S05 E238 — 11/18/2024

Í beina útsendingu koma til okkar Þórunn Hreggviðsdóttir, skurðhjúkrunarfræðingur, Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar, Magnús Árni Skúlason, hagfræðingur og Þórdís Bjarnleifsdóttir, félagsráðgjafi og fyrrverandi bóndi til að ræða líðandi stund og helstu skandala í pólitíkinni í aðdraganda kosninga. Breki Karlsson og Sigurjón Magnús Egilsson fara síðan yfir störf Alþingis – en í dag var þinginu slitið. Þeir ræða líka um búvöruhneykslið. Jón Kristjánsson fiskifræðingur rekur samband spillingar og fiskiráðgjafar. Hann vill að við veiðum meiri þorsk en lagt er til.

Helgi-spjall: Sólveig Anna

Helgi-spjall: Sólveig Annaarrow_forward

S05 E237 — 11/16/2024

Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segir okkur frá æsku sinni og uppvexti, innra lífi og uppreisn, pólitískum þroska og baráttu.

Vikuskammtur: Vika 46

Vikuskammtur: Vika 46arrow_forward

S05 E236 — 11/15/2024

Náttúruhamfarir, umhverfishamfarir,  framboðshamfarir en líka grín og gleði verður til umræðu í Vikuskammtinum að þessu sinni. Tíðindarík vika að baki og veitir ekki af eldfjallafræðingi til að greina stöðuna! Þau Sigurrós Eggertsdóttir, Helga Sigrún Harðardóttir, Þorvaldur Þórðarson og Páll Valur Björnsson leiða saman hesta sína. Þau ræða fréttir vikunnar og tíðaranda líðandi stundar. Björn Þorláks stýrir umræðunum

Kosningar, spilling, list, inngilding og fjölmiðlar

Kosningar, spilling, list, inngilding og fjölmiðlararrow_forward

S05 E235 — 11/14/2024


Í beina útsendingu við Rauða borðið í kvöld koma þau Henry Alexander Henryson siðfræðingur, Snorri Ásmundsson myndlistarmaður, Sigurður Haraldsson rafvirkjameistari og Ása Lind Finnbogadóttir framhaldsskólakennari og plötusnúður til að ræða málefni líðandi stundar í aðdraganda kosninganna. Í málefnaumræðu um mikilvægustu málefni kosninganna ræðum við um spillingu á Íslandi og þau Guðrún Johnsen, hagfræðingur og deildarforseti Viðskiptadeildar Háskólans á Bifröst, Jón Þórisson, fyrrum aðstoðarmaður Evu Joly, Björn Þorláksson, höfundur og blaðamaður og Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands ræða um stöðu og umfang spillingarinnar á Íslandi og velta fyrir sér spillingarvörnum, tjáningarfrelsi og ótta í ljósi nýliðinna atburða og annarra eldri. Til að ræða annað mikilvægt mál sem sumir telja að sé tískuorð forréttindahópa en er í raun réttindabarátta upp á líf og dauða koma þau Margrét M. Norðdahl, Þórir Gunnarsson, Elín Sigríður María Ólafsdóttir listafólk hjá Listvinnzlunni. Þau ræða um lokaðar dyr sem fatlaðir einstaklingar og listamenn rekast á og um sína eigin sáru reynslu af jaðarsetningu og útilokun frá skólakerfinu og skora á stjórnvöld og samfélagið allt að taka skref og taka þátt í inngildingu, skapandi starfi og samræðu sem opnar dyr.  Við heyrum svo í Skapta Hallgrímssyni ritstjóra á Akureyri sen fer yfir helstu màl norðan heiða, brjàlaða veðurspá og afmæli mikilvægs vefmiðils.

Kosningar, hneyksli, húsnæði og saga úr daglega lífinu

Kosningar, hneyksli, húsnæði og saga úr daglega lífinuarrow_forward

S05 E234 — 11/13/2024

Fjórir listamenn mæta í beina útsendingu í kvöld og svara spurningu um hvort listamenn forðist að opinbera pólitískar skoðanir? Getur það skaðað þá? Og þá hvernig? Þekkjum við dæmi um það? Listamennirnir eru: Jóna Hlíf Halldórsdóttir, Auður Jónsdóttir, Guðmundur Andri Thorsson og Hörður Torfason.  Rannsóknarblaðamennirnir Helgi Seljan og Aðalsteinn Kjartansson bregða sér í hlutverk viðmælenda í kvöld og  fara yfir mál vikunnar; meinta spillingu í sjávarútvegsráðuneytinu og títt umrædda uppljóstrun tengda syni fyrrverandi ráðherra. Jónas Atli Gunnarsson, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Sigurður Stefánsson, Aflvaka og Yngvi Ómar Sighvatsson, Leigjendasamtökunum ræða um helstu áskoranir í umbótum í húsnæðisóefni þjóðarinnar. Hafdís Huld Eyfeld Haakansson eftirlaunakona og móðir fjölfatlaðrar konu, Svanhvítar Eddu Johnsen, segir frá baráttu sinni fyrir að dóttirin fái notið arfs sem hún fékk eftir föður sinn.

Sakamál, fíkn, spilling, bækur og pólitík

Sakamál, fíkn, spilling, bækur og pólitíkarrow_forward

S05 E233 — 11/12/2024

Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður, Elva Dögg Hafberg Gunnarsdóttir uppistandari, Halla B. Þorkelsson hjá Heyrnarhjálp og Teitur Atlason kryfja samtímann í beinni útsendingu með Birni Þorláks. Sigrún Sigurðardóttir doktor í hjúkrunarfræði og prófessor við HA, Daðey Albertsdóttir sálfræðingur á Geðheilsumiðstöð barna, Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ og Sigtryggur Ari Jóhannsson ljósmyndari og óvirkur alkóhólisti koma og ræða að aldrei hafa fleiri látist úr lyfjaeitrunum en nú er kemur að ungu fólki. Hvað er til ráða? Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur kemur og segir nokkur orð um Jón Gunnarsson og spillingarmál sem nú skekur stjórnsýsluna. Sigþrúður Gunnars, framkvæmdastjóri Forlagsins, kemur og ræðir árekstra bóksölu og kosninganna. Og í lokin kemur Soffía Sigurðardóttir og segir Gunnari Smára Egilssyni frá Geirfinnsmálinu í tilefni af nýrri bók bróður hennar, Sigurðar Björgvins. Var rannsóknin þvæla byggð á sandi?

Pólitíkin, fátækt, þöggun og vinstrið

Pólitíkin, fátækt, þöggun og vinstriðarrow_forward

S05 E232 — 11/11/2024

Við byrjum á umræðu um stöðuna í pólitíkinni. Drífa Snædal talskona Stígamóta, Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri, Páll Baldvin Baldvinsson rithöfundur og Sigríður Dögg Auðunsdóttir formaður Blaðamannafélagsins greina stöðuna. Verður fátækt kosningamál? Ætti fátæk að vera kosningamál? Kristín Heba Gísladóttir framkvæmdastjóri Vörðu rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, Vilborg Oddsdóttir félagráðgjafi hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og Laufey Líndal Ólafsdóttir formaður Pepp samtaka fólks í fátækt ræða stöðuna. Jóhann Hauksson blaðamaður ræðir mál Jóns Gunnarssonar, sem sakar Heimildina um alvarleg óheilindi, er til umræðu. Í lokin kemur Steingrímur J. Sigfússon og ræðir um stöðu Vg og vinstrisins. 

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí