Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
arrow_forward
Hvers vegna er Salka svona nútímaleg greining á kynferðisofbeldi?
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og Björn Thors leikstjóri ræða um Sölku – ástina og dauðann, um einleiki og frásagnarleikhús við …
arrow_forward
Sagði Marco Rubio nokkuð annað en JD Vance sagði í fyrra?
Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir helstu strauma af öryggisráðstefnunni í Munchen í spjalli við Gunnar Smára um heimsmálin.
Þættir
Helgi-spjall: Rán Reynisdóttirarrow_forward
Unnur Rán Reynisdóttir hársnyrtimeistari og fjögurra barna móðir er komin í framboð. Hún segir okkur frá lífsbaráttu sinni sem varð önnur og harðari en hún bjóst við, ástinni sem svíkur, grimmri fátækt og mikilvægi þess að berjast með samherjum fyrir réttlæti.
Vikuskammtur: Vika 45arrow_forward
Við fáum góða gesti til að renna yfir tíðindi vikunnar með okkur. Þetta eru þau Helga Þórey Jónsdóttir menningarfræðingur, Óli Dóri tónlistarstjóri og fjölmiðlamaður, Ágúst Ólafur Ágústsson fyrrum þingmaður og nú kennari við Háskóla Íslands og Katla Ásgeirsdóttir plötusnúður.
Heilbrigðiskerfi, fjársvelti, fötlun, harka, listarrow_forward
Það er tekið á mörgum ólíkum grundvallarmálum við Rauða borðið í dag og gestir úr öllum áttum. Í beina útsendingu mætir fólk sem hefur þekkingu og reynslu af uppbyggingu og niðurbroti heilbrigðiskerfisins, en það eru þau Jósep Blöndal læknir, Sigurður Ingibergur Björnsson stjórnarformaður Eyris Venture Management og fyrrum framkvæmdastjóri Klíníkurinnar, María Pétursdóttir öryrki, listakona og frambjóðandi og Tinna Laufey Ásgeirsdóttir heilsuhagfræðingur og prófessor við Háskóla Íslands. Því næst tökum við fyrir fjársveltar samfélagsstofanir í samræðu við Hilmar Malmquist forstjóra Náttúruminjastofnunar Íslands, Andrés Skúlason formann Fornminjanefndar, Svanhildi Bogadóttur fyrrum Borgarskjalavörð og Snæbjörn Brynjarsson leikhússtjóra Tjarnarbíós. Þá er komið að spurningu dagsins þar sem almenningur á strætum borgarinnar svarar spurningunni: Skiptir viðhorf stjórnmálaflokka til menningarmála þig máli? Í Radíó Gaza er rætt um hörkuna sem færst hefur í hælisleitendamál undanfarin misseri, þær Arndís Anna fráfarandi þingmaður Pírata og lögfræðingur, Margrét Baldursdóttir túlkur og Áslaug Ýr Hjartardóttir ritlistarnemi sem er með samhæfða sjón og heyrnarskerðingu koma og ræða meðal annars um mál fimm manna fjölskyldu frá Írak en hluti þeirra er haldinn sömu fötlun og Áslaug Ýr. Að lokum segir Lára Zulima Ómarsdóttir okkur frá gleymdri myndlistarkonu, Höllu Haraldsdóttur.
Trump, efnahagur, stjórnarskrá, neytendur, rödd almennings, verkfallsvaktarrow_forward
Við Rauða borðið í kvöld verður tekið á grundvallarmálunum og nýjustu fréttum. Sigurjón Magnús Egilsson tekur á móti góðum gestum í beina útsendingu til að ræða meðal annars um úrslit kosninganna í Bandaríkjunum; Eva Bergþóra Þorbergsdóttir samskiptastjóri Reykjavíkurborgar, Gunnnar Hólmsteinn Ársælsson kennari, Hallfríður Þórarinsdóttir mannfræðingur, Sigurður Gylfi Magnússon prófessor í sagnfræði í Háskóla Íslands. Efnahagsstjórnin hér hefur gengið frekar illa, ríkissjóður er rekinn með halla ár eftir ár. Hvers vegna er það og hvað er unnt að gera til að snúa þessu við? Við fáum fjóra góða hagfræðinga til að greina stöðuna. Þeir eru: Þórólfur Matthíasson prófessor emeritus, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hagfræðingur hjá BSRB, Ólafur Garðar Halldórsson hagfræðingur hjá SA og Róbert Farestveit hagfræðingur hjá ASÍ. Hjörtur Hjartarson og Katrín Oddsdóttir frá Stjórnarskrárfélaginu setja nýja stjórnarskrá á dagskrá og útskýra hvers vegna það er kosningamál sem liggur til grundvallar öllum helstu kröfum okkur og draumum um betra líf og réttlátara. Benjamín Julian fer yfir neytendafréttir og fólk á förnum vegi svarar spurningum um stjórnarskrá sem kosningamál og hvað þurfi til að gera til að bjarga ríkissjóði úr halla. Á Verkfallsvakt Rauða borðsins ræðir Haukur Hilmarsson, smíðakennari í Reykjanesbæ um kennara sem blóraböggla en hann skrifaði samninganefndunum skeyti í formi dagbókar kennara sem varpar ljósi á umfang starfsins sem er vanmetið.
Kosningar, forsetakjör í USA, samgöngumál, Færeyjar, rokkstjörnur og gamalt sakamálarrow_forward
Við hefjum leik með hópumræðu þar sem spurt verður hvað við ættum helst að vera að ræða fyrir Alþingiskosningarnar 30. nóvember næstkomandi. Frosti Logason, Hjálmar Gíslason, Dóra Björt Guðjónsdóttir og Kristín Erna Arnardóttir ræða málin. Nú þá verða samgöngumál sem kosningamál rædd frá ýmsum hliðum. Stefán Jón Hafstein, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar, Ólafur Arnarson blaðamaður og Hjalti Jóhannesson landfræðingur á Akureyri spjalla við Björn Þorláks. María Lilja Þrastardóttir Kemp ræðir við almenning um forsetakjörið í Bandaríkjunum. Hún spyr einnig hvað rokkstjörnur kjósi. Hljómsveitin Spacestation kemur beint úr hljóðprufu að Rauða borðinu en bandið tekur eins dags forskot á Airwaves vertíðina sem hefst á morgun með grasrótartónleikum í Hörpu í kvöld. Oddný Eir Ævarsdóttir flytur okkur fréttir frá Færeyjum í gegnum viðmælandann Carl Jóhan Jensen. Skorað verður á frambjóðendur að taka afstöðu til aukins samstarfs Íslendinga og Færeyinga. Við ljúkum svo þætti kvöldsins með umræðu um nýja bók. Magnús Ólafsson fyrrverandi bóndi á Sveinsstöðum segir okkur frá riti sem fjallar um síðustu aftökuna á Íslandi og varpar ljósi á réttvísi og ranglæti.
Pólitíkin, flóttafólk, geðheilbrigði, kjósendur, verkfall, landflótti og Gazaarrow_forward
Lilja Alfreðsdóttir menningarmálaráðherra, Pétur Tyrfingsson sálfræðingur, Helga Arnardóttir fjölmiðlakona og Páll Ásgeir Ásgeirsson fjallamaður ræða stöðuna í pólitíkinni í aðdraganda kosninga. Hvernig verður fólki við þegar manneskjur sem dvalið hafa hér misserum saman eru allt í einu fangelsaðar með hótun um brottvísun. Ragnar Magnússon framhaldsskólakennari segir frá. Við tökum fyrir geðheilbrigðismál, verða þau kosningamál? Elín Ebba Ásmundsdóttir iðjuþjálfi í Hlutverkasetri, Guðbjörg Sveinsdóttir geðhjúkrunarfræðingur, Svava Arnardóttir formaður Geðhjálpar og Sigurþóra Bergsdóttir frá Berginu headspace ræða stöðuna. Við förum í Kringluna og ræðum við kjósendur og tvær unglingsstúlkur sem eru í kennaraverkfalli: Lena Louzir og Þórdís Sigtryggsdóttir. Jack Hrafnkell Danielsson er fluttur til Noregs. Hann er í heimsókn hér á landi en honum líst hvorki á pólitíkina né umferðina. Í lokin verður Radíó Gaza. María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp ræðir við mótmælendur: Pétur Eggertz, Sigtrygg Ara Jóhannsson, Guðbjörgu Ásu Jóns-Huldudóttur og Möggu Stínu.
Helgi-spjall: Magnús Schevingarrow_forward
Magnús Scheving segir frá harðræði í æsku, hvernig hann lifði af og hvernig þau viðbrögð mótaðu líf hans, frá lífsviðhorfum sínum og leit að því að sætta þá Magga sem búa innra með honum.
Vikuskammtur: Vika 44arrow_forward
Að Rauða borðinu í beina útsendingu í Vikuskammtinn koma til að ræða frjálslega út frá fréttum vikunnar þau Ása Lind Finnbogadóttir framhaldsskólakennari og plötusnúður, Valur Gunnarsson rithöfundur, Sigrún Sandra Ólafsdóttir endurvinnsluáhugamanneskja, Arnar Páll Gunnlaugsson bifvélavirki og frambjóðandi og Þór Martinsson sagnfræðingur. Umsjón með umræðunni hefur Oddný Eir.
Kosningar, samkeppni, verkfall, Bandaríkin og klassíkinarrow_forward
Spennan í íslenskum stjórnmálum vex. Héðinn Unnsteinsson stefnumótunarfræðingur, Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður og þingmaður, Erna Bjarnadóttir hagfræðingur og Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar taka stöðuna. Við ræðum samkeppnismál í aðdraganda kosninga: Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna, Páll Gunnar Pálsson forstjóri Samkeppniseftirlitsins og Gísli Tryggvason lögmaður og fyrrum talsmaður neytenda ræða hvað stjórnvöld þurfa að gera til efla samkeppni og styrkja hag neytenda. Guðjón Hreinn Hauksson formaður Félags framhaldsskólakennara, Haraldur F. Gíslason formaður Félags leikskólakennara, Sigrún Grendal Jóhannesdóttir formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum og Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins koma á verkfallsvakt kennara. Jón Ólafsson prófessor og Friðjón R. Friðjónsson borgarfulltrúi ræða forsetakosningarnar í Bandaríkjunum og Magnús Lyngdal Magnússon sagnfræðingur segir okkur frá bók sinni um Klassíska tónlist.
Kosningar, skattar, verkfall, öryggismál og gervigreindarrow_forward
Við byrjum á kosningum: Theodóra S. Þorsteinsdóttir fyrrverandi þingkona og nú bæjarfulltrúi, Erna Hlynsdóttir blaðakona, Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri Lifðu núna og Guðmundur Ari Sigurjónsson formaður framkvæmdastjórnar Samfylkingarinnar greina stöðuna. Skattamál verða kosningamál. Stefán Ólafsson prófessor, Indriði H. Þorláksson fyrrum skattstjóra og Skapti Harðarson formaður Samtaka skattgreiðenda ræða allar hliðar skattamála. Egill Helgason og Hulda Lovísa Ámundadóttir, deildarstjórar á Drafnarsteini, koma á verkfallsvaktina. Hilmar Þór Hilmarsson prófessor ræðir öryggismál Evrópu og Úkraínustríðið og Þorsteinn Siglaugsson hagfræðingur ræðir um áhrif gervigreindar á samfélagið.