Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

Kosningar, útlendingamál, Selenskí, lýðræði og Elísabet

Kosningar, útlendingamál, Selenskí, lýðræði og Elísabetarrow_forward

S05 E221 — 10/29/2024

Við ræðum komandi kosningar, um hvað verður kosið, hvaða flokkar eru í sókn og hverjir í vörn. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir prófessor, Páll Magnússon forseti bæjarstjórnar í Vestmannaeyjum, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar og Freyja Steingrímsdóttir framkvæmdastjóri Blaðamannafélagsins greina stöðuna. Svo kölluð útlendingamál eru eitt af kosningamálunum. Qussay Odeh íslensk-palestínskur aðgerðarsinni, Nichole Leigh Mosty leikskólastjóri, Helgi Gunnlaugsson afbrotafræðingur og Nína Helgadóttir teymisstjóri hjá Rauða krossinum ræða þetta hitamál. Tjörvi Schiöth doktorsnemi í sagnfræði greinir hvað Selenskí Úkraínuforseti var að biðja Norðurlöndin um. Björn Þorsteinsson heimspekiprófessor ræðir um lýðræðiskrísuna og Elísabet Jökulsdóttir segir okkur frá bók sinni um Grikklandsárin sín, þegar hún var barn.

Kosningar, skólamál, forseti USA, kennaraverkfall og heilbrigðiskerfið

Kosningar, skólamál, forseti USA, kennaraverkfall og heilbrigðiskerfiðarrow_forward

S05 E220 — 10/28/2024

Við höldum áfram að ræða komandi kosningar: Bolli Héðinsson hagfræðingur, Davíð Þór Jónsson prestur og frambjóðandi Sósíalista, Halldóra Mogensen þingkona Pírata og Úlfar Hauksson stjórnmálafræðingur og skútuskipstjóri ræða stöðuna. Skólamál verða eitt af kosningamálunum: Kristín Björnsdóttir formaður Kennarafélags Reykjavíkur, Björgvin Þór Þórhallsson aðstoðarskólastjóri og Ragnar Þór Pétursson kennari Í Norðlingaskóla ræða skólamálin og meta áhrif þeirra á kosningarnar. Guðmundur Hálfdanarson prófessor og Magnús Helgason sagnfræðingur greina æsispennandi forsetakosningar í Bandaríkjunum og áhrif þeirra innanlands og utan. Kennarar eru að fara í verkfall: Þórunn Sif Böðvarsdóttir kennari í Laugalækjarskóla, Halldóra Guðmundsdóttir leikskólastjóri í Drafnarsteini, Helga Baldursdóttir varaformaður Félags framhaldsskólakennara og kennir í Tækniskólanum og Egill Helgason kennari í Drafnarsteini ræða stöðuna og í lokin ræðir Gunnar Alexander Ólafsson heilsuhagfræðingur um heilbrigðiskerfið.

Helgi-spjall: Sigurður Skúlason

Helgi-spjall: Sigurður Skúlasonarrow_forward

S05 E219 — 10/26/2024

Sigurður Skúlason segir frá ævi sinni og leit að jafnvægi, frá ástleysi, föðurleysi og hlýjum faðmi, frá sviðsljósinu sem sveik og hvernig þagga má niður í egóinu.

Vikuskammtur: Vika 43

Vikuskammtur: Vika 43arrow_forward

S05 E218 — 10/25/2024

Í vikuskammt að þessu sinni koma þau Valgerður Árnadóttir, talskona Hvalavina, Yngvi Ómar Sighvatsson, tölvuleikjahönnuður og varaformaður leigjendasamtakanna, Sunna Ingólfsdóttir, mannfræðingur, kennari og tónlistarkona og Geir Sigurðsson, rithöfundur og prófessor. Umsjón hefur Oddný Eir Ævarsdóttir.

Kosningar, átök, hækkun matarverð, hernaðarandstæðingar, Gaza og vond leikrit

Kosningar, átök, hækkun matarverð, hernaðarandstæðingar, Gaza og vond leikritarrow_forward

S05 E217 — 10/24/2024

Við ræðum pólitík í aðdraganda kosninga. Karen Halldórsdóttir fyrrum bæjarfulltrúi, Marinó G. Njálsson ráðgjafi, Guðríður Arnardóttir fyrrverandi form Félags framhaldsskólakennara og fyrrum bæjarfulltrúi og Hákon Gunnarsson bæjarfulltrúi, allt Kópavogsbúar, koma fyrst og svo blaðamennirnir Jakob Bjarnar Grétarsson, Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Frosti Logason og Karen Kjartansdóttir. Benjamín Julian, verkefnastjóri verðlagseftirlits Alþýðusambandsins, fjallar um hækkun matvælaverðs og önnur neytendamál. Árni Hjartarson, sem var ritstjóri veglegar bókar um baráttu hernaðarandstæðinga, segir okkur frá bókinni og baráttunni. Árni segir enn: Ísland úr Nató og herinn burt. María Lilja fær til sín ungliða til að ræða þjóðarmorðið í Gaza: Gunnar Ásgrímsson kemur frá Ung Framsókn, Ármann Leifsson frá Ungum jafnaðarmönnum í Samfylkingunni, Karl Héðinn Kristjánsson frá Roða í Sósíalistaflokknum og Sverrir Páll frá Uppreisn í Viðreisn. Og Lára Magnúsardóttir ræðir um tvö leikrit á fjölum leikhúsanna og þær leiðir sem hægt er að fara til að virkja menningarstofnanir okkar til að styrkja íslensku og fólk sem vill læra íslensku.

Pallborð ungliða, pólitíkin, stjórnmálaafl innflytjenda, leikhús og forn vinnumenning

Pallborð ungliða, pólitíkin, stjórnmálaafl innflytjenda, leikhús og forn vinnumenningarrow_forward

S05 E216 — 10/23/2024

Við hefjum leik á umræðu ungs fólks,  heyrum hvað þeim finnst að stjórnmálaflokkar ættu að setja á oddinn nú fyrir kosningarnar. Þau Jósúa Gabríel Davíðsson, Valgerður Birna, Karl Héðinn Kristjánsson og Viktor Pétur Finnsson ræða málin með Birni Þorláks umsjónarmanni í beinni útsendingu. Að þeirri umræðu lokinni koma þau Oddný G. Harðardóttir þingmaður, Vigdís Hauksdóttir fyrrum þingmaður, Björg Eva Erlendsdóttir fyrrum fréttamaður og Sigmundur Ernir Rúnarsson, sem er bæði fyrrum ritstjóri og fyrrum þingmaður og ræða ýmsa anga stjórnmálanana og bregðast að einhverju leyti við orðum unga fólksins. Jasmina Vajzovic ætlar svo að segja okkur frá höfnun og útilokun sem hún upplifði eftir röðun á lista Viðreisnar. Hún upplýsir um hugmyndir um stofnun nýs stjórnmálaflokks, sem aðeins yrði skipaður innflytjendum. Gunnar Smári fjallar um Óskalandið, gamandrama í Borgarleikhúsinu, og ræðir við leikstjórann Hilmi Snæ Guðnason og leikarana Esther Talíu Casay og Vilhelm Neto. Einnig kynnum við nýlega bók um forna búskaparhætti, Bjarni Guðmundsson kennari er höfundur hennar og segir hann okkur frá bókinni og efni hennar.

Kosningar, karlar, dans og ofbeldi

Kosningar, karlar, dans og ofbeldiarrow_forward

S05 E215 — 10/22/2024

Við höldum fram að ræða komandi kosningar: Jón Gnarr frambjóðandi Viðreisnar, Kristín Helga Gunnarsdóttir rithöfundur, Valur Gunnarsson sagnfræðingur og Frosti Sigurjónsson fyrrum þingmaður Framsóknar metra stöðuna og síðan halda þau áfram: Kristín Vala Ragnarsdóttir jarðfræðingur, Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur og þjóðfræðingarnir Auður Viðarsdóttir og Vilborg Bjarkadóttir. Í karlaspjalli á þriðjudegi ræðum við spaka karlinn. Bjarni Karlsson prestur og siðfræðingur leiðir samtalið og Pawel Bartoszek varaborgarfulltrúi, Logi Pedro Stefánsson tónlistarmaður og hönnuður, Sverrir Norland rithöfundur og Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri taka þátt. Svartir fuglar er dansverk sem sýnt er í Tjarnarbíói, Lára Stefánsdóttir samdi dansa við ljóð Elísabetar Jökulsdóttur og Lára Þorsteinsdóttir dansar. Við fáum þær í heimsókn. Linda Dröfn Gunnarsdóttir framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins ræðir breytta birtingarmynd ofbeldis. Engin teikn eru á lofti um að útlendingar beiti frekar íslenskar konur ofbeldi en innfæddir karlar.

Kosningar, frambjóðendur, blaðamennska, Grindavík og Gaza

Kosningar, frambjóðendur, blaðamennska, Grindavík og Gazaarrow_forward

S05 E214 — 10/21/2024

Við höldum áfram þjóðfundi um komandi kosningar: Þórður Gunnarsson hagfræðingur, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar, Jón Magnús Kristjánsson læknir og Brynhildur Björnsdóttir fjölmiðlakona ræða pólitíkina og síðan koma: Bragi Páll Sigurðsson rithöfundur, Hrafn Jónsson kvikmyndagerðarmaður og Lóa Hjálmtýsdóttir myndlistarkona og greina stöðuna. Kristinn Hrafnsson blaðamaður greinir þunga stöðu blaðamennsku á Íslandi sem og í umheiminum og Magnús Gunnarsson trillukarl ræðir tímamótin sem urðu í dag þegar Grindavík var opnuð. Bergþóra Snæbjörnsdóttir og Hildur Þórðardóttir ræða við Maríu Lilju Ingveldar-Þrastardóttir Kemp um þjóðarmorðin á Gaza.

Helgi-spjall: Kristinn Sigmunds

Helgi-spjall: Kristinn Sigmundsarrow_forward

S05 E213 — 10/19/2024

Kristinn Sigmundsson segir okkur frá ferð sinni um lífið og óperuheiminn, hvernig tilviljanir og heppni ráða oft mestu í lífinu og hvernig best er að sætta sig við það og njóta.

Vikuskammtur – Vika 42

Vikuskammtur – Vika 42arrow_forward

S05 E212 — 10/18/2024

Oddný Eir ræðir fréttir vikunnar með góðum gestum en að þessu sinni mæta þau Jovana Pavlović, Ugla Stefanía Kristjönudóttir Jónsdóttir, Jón Ferdínand Estherarson og Rakel McMahon í Vikuskammt við Rauða borðið.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí