Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
arrow_forward
Hvers vegna er Salka svona nútímaleg greining á kynferðisofbeldi?
Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona og Björn Thors leikstjóri ræða um Sölku – ástina og dauðann, um einleiki og frásagnarleikhús við …
arrow_forward
Sagði Marco Rubio nokkuð annað en JD Vance sagði í fyrra?
Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fer yfir helstu strauma af öryggisráðstefnunni í Munchen í spjalli við Gunnar Smára um heimsmálin.
Þættir
Dagskrárvald, Gaza, tónlistaruppeldi, andófs-usliarrow_forward
Rauða borðið heldur áfram að taka stöðuna og setja málefni á dagskrá kosninganna. Er allt mögulegt? Oddný Eir stýrir samræðu kvöldsins í beinni útsendingu sem hefst klukkan átta og er í tveimur liðum: Fyrst mæta til leiks þau Jón Ólafsson heimspekingur og prófessor, Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir þingkona, Auðunn Arnórsson verkefnastjóri og leiðsögumaður , og Sigurjón Magnús Egilsson blaðamaður. Síðan mæta þau Kristín Ómarsdóttir skáld, Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar og Atli Ingólfsson tónskáld. Björn Þorláksson ræðir svo við þau Herdísi Önnu Jónsdóttur og Þóri Jóhannsson um tónlistarlegt uppeldi í hinu bjarta norðri. María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp ræðir við ungliða Vg, Pírata og Sósíalista um þjóðarmorðið á Gaza: Anita Da Silva Bjarnadóttir og Karl Héðinn Kristjánsson frá Roða ungum sósíalistum, Lenya Rún Taha Karim frá ungum pírötum og Jósúa Gabríel Davíðsson frá UngVG. Og Oddný Eir ræðir svo við Gunnar Þorra Pétursson um andófs-uslann í Meistaranum og Margarítu eftir Bulgakov.
Stjórnmál, samfélagið, klassísk tónlist og landflótti Íslendingaarrow_forward
Við hefjum leik á pólitíkinni og stöðunni sem upp er komin. Við munum kjósa í svartasta skammdeginu eftir nokkrar vikur. Stór hópur fólks hittist í beinni útsendingu og ræðir hvað ber að varast, auk þess sem óskalista kosningamála ber á góma. Þau Jódís Skúladóttir, þingmaður VG, Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður pírata, Auður Önnu Magnúsdóttir hjá Kvenréttindafélaginu, Henry Alexander Henrysson siðfræðingur, Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur, Sara Óskarsdóttir móðir og listamaður og Ólafur Arnarsson blaðamaður ræða við Björn Þorláks. Að lokinni pólitíkinni kemur Michael Clarke, tónlistarmaður á Akureyri, og ræðir norðlenska tónlistarsögu og stofnun Hljómsveitar Akureyrar. Rúsínan í pylsuendanum er Hlín Agnarsdóttir rithöfundur og leikhúsmanneskja. Hún ræðir alöru þess að hrekjast úr landi, en hnyttnin er aldrei fjarri þegar Hlín er annars vegar.
Dauð ríkisstjórn, kosningar, karlar og Bréf til Láruarrow_forward
Við höldum áfram að greina stöðuna í pólitíkinni, dauða stjórnar og komandi kosninganna. Þorvaldur Gylfason hagfræðingur, Rósa Björk Brynjólfsdóttir fyrrverandi þingkona, Ragnar Þór Pétursson kennari og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi ræða málin og síðan rithöfundarnir Guðmundur Andri Thorsson, Halldór Armand Ásgeirsson, Auður Jónsdóttir og Oddný Eir Ævarsdóttir. Fjórði þáttur karlaspjallsins hefst svo: Valdimar Örn Flygenring leikari og leiðsögumaður, Eiríkur Örn Norðdahl rithöfundur og Eiríkur Hjálmarsson upplýsingafulltrúi ræða við Bjarna Karlsson prest og siðfræðing um staka karlinn. Í lokin fögnum við 100 ára afmæli Bréfs til Láru með Pétri Gunnarssyni rithöfundi og Soffíu Auði Birgisdóttur bókmenntafræðingi.
Ástandið í stjórnmálunum, rímnaskáld og ferðakapítalismiarrow_forward
Við höldum áfram að greina ástandið í pólitíkinni með gestum: Vilhjálmur Árnason þingmaður, Halla Gunnarsdóttir varaformaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR, Halldóra Mogensen þingkona, Drífa Snædal talskona Stígamóta, Gísla Tryggvason lögmaður, Viðar Eggertsson leikari og Björn Jón Bragason sagnfræðingur meta stöðuna. Mun allt fara samkvæmt vilja Bjarna Benediktssonar? Á næstu dögum kemur út bók um skáldverk Sigurðar Breiðfjörðs og hvernig Jónas Hallgrímsson hjólaði í rímur skáldsins og bar hvorugur barr sitt á eftir að mati höfundar. Óttar Guðmundsson geðlæknir ritar bókina og ræðir verk sitt. Hjörleifur Finnsson, heimspekingur og fyrrverandi frumkvöðull í ferðaiðnaði fer í gegnum óheillaþróun ferðamála á Íslandi og sýnir hvernig ferðamálin eru í heljargreipum stórkapítalismans.
Aukaþáttur: Bjarni sprengir ríkisstjórn sínaarrow_forward
Við fáum gesti og gangandi til að meta stöðuna eftir að Bjarni Benediktsson forsætisráðherra sprengdi ríkisstjórn sína. Líklega verður kosið 30. nóvember, eftir 48 daga. Um hvað verður kosið? Lifa allir flokkar kosningarnar af? Áhugafólk um pólitík sest að borðinu: Karen Kjartansdóttir upplýsingafulltrúi, Brynjar Níelsson lögfræðingur, Hallur Magnússon verktaki, Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna, Tómas Ellert Tómasson fyrrum bæjarfulltrúi Miðflokksins í Árborg, Þórður Snær Júlíusson fyrrum ritstjóri, Atli Þór Fanndal fyrrum blaðamaður, Orri Páll Jóhannsson þingflokksformaður Vg, Sigmar Guðmundsson þingmaður Viðreisnar, Oddný Eir Ævarsdóttir rithöfundur, Davíð Þór Jónsson prestur og Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi.
Helgi-spjall: Hallgrímurarrow_forward
Hallgrímur Helgason rithöfundur og málari segir okkur frá lífi sínu og list, fljótinu sem rennur í gegnum hann og því sem hann er og hefur orðið.
Vikuskammtur: Vika 40arrow_forward
Í vikuskammt að þessu sinni koma þau Helga Þórey Önnudóttir Jónsdóttir, Sæþór Benjamín Randalsson, Grímur Atlason og Sólveig Arnarsdóttir að ræða fréttir vikunnar.
Fósturvísamálið. neytendur, spilling, fréttir frá Gaza, sýndarmennskaarrow_forward
Hallur Hallsson blaðamaður segir frá fósturvísamálinu, ótrúlegri sögu þess og viðbrögðum sem hann hefur fengið við frásögnum sínum. Breki Karlsson formaður Neytendasamtakanna fer yfir neytendamál og Björn Þorláksson segir okkur frá bók sinni um spillingu á Íslandi. María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp ræðir við Heiðar Örn Sigurfinnsson fréttastjóra Ríkisútvarpsins um fréttaflutning frá Gaza og Einar Baldvin Brimar höfundur og Vignir Rafn Valþórsson leikstjóri verksins Nauðbeygð Messa nýrra tíma segja okkur frá erindi þess og uppfærslu.
Viðreisn, framleiðni, pólitík, gæsla, heimsmálin, flugvöllur og kannabisarrow_forward
Það hefur skapast örlítil ólga í Viðreisn eftir að Jón Gnarr sóttist óvænt eftir oddvitasæti í Reykjavík án þess að hafa nokkru sinni verið í flokknum. Þorbjörg Gunnlaugsdóttir þingmaður ræðir gusuganginn. Þórólfur Matthíasson prófessor greinir efnahaginn; hagvöxt, verðbólgu og vexti. Margrét Tryggvadóttir formaður Rithöfundasambandsins og Erna Bjarnadóttir varaþingkona Miðflokksins ræða við Sigurjón Magnús Egilsson um stjórnmál. Katrín Oddsdóttir mannréttindalögfræðingur telur að vopnaburður og öryggisgæsla í kringum ráðherra kunni að hafa gengið út í öfgar. Helen Ólafsdóttir öryggisráðgjafi ræðir heimsmálin á tímum stríðs og þjóðarmorðs. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur lýsir furðu sinni á umræðu um samgöngur og náttúruhamfarir þessa dagana. Hvassahraun er galin hugmynd. Magnús Þórsson prófessor á Rhode Island skýrir hvað cannabis science eru.
Kennarar, hjúkrunarfræðingar, svefn, karlar, klassík og vopnarrow_forward
Guðbjörg Pálsdóttir formaður Félags hjúkrunarfræðinga og Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins ræða kjarabaráttu sinna félaga. Erla Björnsdóttir sálfræðingur og sérfræðingur í svefni segir að margir Íslendingar þurfi að sofa meira – ekki síst ungt fólk. Við höldum áfram að ræða karlmennsku með Birni Karlssyni presti og guðfræðingi. Karl Pétur Jónsson ráðgjafi, Ingólfur Gíslason prófessor og Jökull Sólberg Auðunsson ráðgjafi ræða við okkur út frá lúxuskarlinum. Sigrún Eðvaldsdóttir mun spila fiðlukonsert Brahms með Sinfóníunni á fimmtudaginn og kemur að Rauða borðinu ásamt Tryggva M. Baldvinssyni listræns ráðgjafa sveitarinnar og ræðir við klassíska tónlist við okkur og tónlistarnemana Sóley Lóu Smáradóttur og Sól Björnsdóttir. Í lokin segir Hildur Þórðardóttir fyrrum forsetaframbjóðandi okkur frá undirskriftasöfnun gegn vopnasendingum til Úkraínu.