Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

Vinstrið, pólitíkin, kannabis, þjóðarmorð og rauðar heimsbókmenntir

Vinstrið, pólitíkin, kannabis, þjóðarmorð og rauðar heimsbókmenntirarrow_forward

S05 E201 — 10/07/2024

Við höldum fund með rótum Vg: Rósa Björk Brynjólfsdóttir fyrrverandi þingkona, Einar Ólafsson skáld og bókavörður, Margrét Pétursdóttir verkakona og Guðmundur Auðunsson hagfræðingur, sem öll hafa verið í Vg, ræða um stöðu vinstrisins í dag. Í Þinginu ræðir Björn Þorláks við Ólaf Þ. Harðarson stjórnmálafræðing. VG og framtíð ríkisstjórnarinnar ber þar hæst. Við ræðum hamp og kannibis við fjórar konur: Lára Bryndís Pálmadóttir hefur tekið inn cbd-olíu vegna verkja, Brynhildur Arthúrsdóttir er móðir stúlku með flogaveiki sem hefur líka notað cbd, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir er aðstandandi sjúklings sem tók inn kannabisolíur og Þórunn Jónsdóttir er stofnandi og varaformaður Hampfélagsins og stendur fyrir ráðstefnu um hamp. María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp ræðir við mótmælendur sem hafa staðið vaktina með Palestínu síðasta árið: Magga Stína, Daníel Guðjón Andrason, Silja Höllu EgilsdóttirKjartan Sveinn Guðmundsson, Árni Viljar Árnason og Pétur Eggerz koma í Radíó Gaza ári eftir árás Hamas á Ísrael. Bókmenntafræðingarnir Anna Björk Einarsdóttir og Benedikt Hjartarson eru gestaritstjórar Ritsins sem fjalla um rauða heimsbókmenntirnar. Þau segja okkur frá áhrifum þeirra á menningu og pólitík.

Helgi-spjall: Lilja Ingólfsdóttir

Helgi-spjall: Lilja Ingólfsdóttirarrow_forward

S05 E200 — 10/05/2024

Lilja Ingólfsdóttir segir okkur frá æsku sinni og tengslunum við Ísland og fólkið sitt hér, mótun og þroska, leið sinni að bíómyndinni Elskuleg sem fjallar um þránna eftir ást og vandanum við að þiggja hana og veita. 

Vikuskammtur: Vika 40

Vikuskammtur: Vika 40arrow_forward

S05 E199 — 10/04/2024

Í Vikuskammt við Rauða borðið koma í dag þau Anita Da Silva Bjarnadóttir öryrki og ungur Roði, Grímur Hákonarson leikstjóri, Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Margrét Manda Jónsdóttir hjúkrunarfræðingur og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af hrörnun ríkisstjórnar, innanflokksátökum, vaxandi stríðsógn og háum vöxtum.

Líbanon, hægrið, samkeppni og sagnfræði

Líbanon, hægrið, samkeppni og sagnfræðiarrow_forward

S05 E198 — 10/03/2024

Við byrjum á Radíó Gaza: María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp ræðir um ástandið í Mið-Austurlöndum við Margréti Marinósdóttur alþjóðastjórnmálafræðing og Guðrúnu Margréti Guðmundsdóttur mannfræðing sem báðar þekkja þennan heimshluta vel. Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi er búinn að stofna Lýðræðisflokkinn. Hann kemur og segir okkur frá flokknum, hægrinu og samfélaginu. Benjamín Julian verkaefnastjóri í verðlagseftirliti Alþýðusambandsins segir okkur frá verðsamkeppni á matvörumarkaði og hvernig búðir geta haldið uppi verði þar sem samanburður er illframkvæmanlegur. Í lokin koma ungir sagnfræðingar, Unnur Helga Vífilsdóttir, Þórey Einarsdóttir og Kolbeinn Sturla G. Heiðuson, og segja okkar frá rannsóknum sínum og stöðu sögunnar í samtímanum.

Krakkaþing, elítur, eftirlaunafólk, búddistar og Einar Sigurður

Krakkaþing, elítur, eftirlaunafólk, búddistar og Einar Sigurðurarrow_forward

S05 E197 — 10/02/2024

Krakkaþing Fíusólar hefur skilað niðurstöðum sínum. Tinna Sigfinnsdóttir framhaldsskólanemi og Guðmundur Brynjar Bergsson grunnskólanemi segja okkur frá þeim ásamt Þórunni Örnu Kristjánsdóttur leikstjóri og leikkonu. Haukur Arnþórsson, stjórnsýslufræðingur ræðir um íslenskar elítur og elítuhugsun. Steingerður Steinarsdóttir ritstjóri lifdununa.is og Guðmumdur Þ. Ragnarsson fyrrverandi formaður VM, ræða við Sigurjón Magnús Egilsson um áskoranir sem mæta fólki á eftirlaunaaldri. Gyða Dröfn Tryggvadóttir og Ástvaldur Zenki Traustason ræða um búddismann í amstri dagsins og Einar Sigurður Jónsson segir frá lífi sínu.

3. Heimstyrjöldin, vistkrísa, borgarlína, Elskuleg og karlar

3. Heimstyrjöldin, vistkrísa, borgarlína, Elskuleg og karlararrow_forward

S05 E196 — 10/01/2024

Tjörvi Schiöth doktorsnemi segir okkur frá innrás Ísraelshers í Líbanon og veikri vígstöðu Úkraínuhers, sem hvort tveggja getur leitt til þriðju heimstyrjöldinni. Heldri eldhugar og fulltrúar eldri aðgerðarsinna Aldins, þeir Stefán Jón Hafstein og Árni Bragason koma að Rauða borðinu og varða veg úr vistkrísunni með alvöru aðgerðaráætlun í raunhæfri bjartsýni. Þórarinn Hjaltason samgönguverkfræðingur er í hópi skeptískra er kemur að Borgarlínu. Hann segir að Borgarlínan hafi þegar kostað höfuðborgarbúa mikið. Vera Wonder Sölvadóttir leikstjóri, Anna Svava Knútsdóttir leikkona, Vilborg Halldórsdóttir leikkona og Helga Rakel Rafnsdóttir leikstjóri ræða Elskuleg, mynd Lilju Ingólfsdóttir, sem fjallar um konur og skilnaði. Annar kafli í karlaspjallinu fjallar um seka karlinn. Bjarni Karlsson prestur og siðfræðingur leiðir samtal um karlmennsku. Rúnar Helgi Vignisson rithöfundur, Reinhold Richter eftirlaunamaður og Freyr Eyjólfsson öskukarl svara og segja frá.

Umboðsmaður Alþingis, píratar, lýðræðið, samgöngur og þýðingar

Umboðsmaður Alþingis, píratar, lýðræðið, samgöngur og þýðingararrow_forward

S05 E195 — 09/30/2024

Í dag er síðasti dagurinn sem Skúli Magnússon umboðsmaður Alþingis getur talað frjálst. Við ræðum við Skúla um meðal annars Yazan-málið. Björn Leví Gunnarsson þingmaður pírata kemur og ræðir stemmninguna á Alþingi, fortíð og framtíð flokksins. Kristín Vala Ragnarsdóttir, prófessor emerita, Sölvi Halldórsson rithöfundur og kynningarfulltrúi RIFF, Valur Gunnarsson, sagnfræðingur og rithöfundur og Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri horfðu á franska heimildarmynd um búsáhaldarbyltinguna og lýðræðistilraun sem ekki er lokið. Þau ræða máli við Oddnýju Eir Ævarsdóttur. Gauti Kristmannsson, prófessor í þýðingafræði við Háskóla Íslands, fræðir okkur um störf þýðandans í tilefni af degi þýðenda. Og við endum á umræðu um samgöngur. Unnar Erlingsson, íbúi á Austurlandi ræðir reiði margra flugfarþega í innanlandsfluginu. Una Margrét Jónsdóttir dagskrárgerðarkona á Rúv og strætófarþegi slær svo botninn í þáttinn með því að lýsa veröld þeirra sem nota almenningssamgöngur á hverjum degi.

Helgi-spjall: Þóra Stína

Helgi-spjall: Þóra Stínaarrow_forward

S05 E194 — 09/28/2024

Þórunn Kristín Emilsdóttir, líka kölluð Þóra Stína hefur starfað sem leiðbeinandi miðill í mörg ár og lýsir litríku starfi sínu og ræðir einnig um baráttu sína fyrir tjáningu á sannleikanum í gegnum réttarhöld, glæpa- og sálarrannsóknir.

Vikuskammtur: Vika 39

Vikuskammtur: Vika 39arrow_forward

S05 E193 — 09/27/2024

Efnahagsmál, náttúruvernd, pólitík, rasismi og vinnubrögð lögreglu verða meðal umræðuefna í Vikuskammti að þessu sinni. Gestir eru Gunnar Sigurðsson leikari, Sigmundur Ernir Rúnarsson blaðamaður, Þorgerður María Þorbjarnardóttir, formaður Landverndar og Sigmar Guðmundsson þingmaður. Umsjónarmaður er Björn Þorláks

Blaðamenn, nýir Íslendingar, VG, börn, alþjóðakerfið, kúrekar og dýraníð

Blaðamenn, nýir Íslendingar, VG, börn, alþjóðakerfið, kúrekar og dýraníðarrow_forward

S05 E192 — 09/26/2024

Aðalsteinn Kjartansson sem hefur um árabil haft réttarstöðu sakbornings ásamt fjölda annarra blaðamanna ræðir ákvörðun lögreglu fyrir norðan að hætta rannsókn á umtöluðu máli. Við fjöllum um innflytjendamál. Þau Morgane Priet-Mahéo stuðningsfulltrúi hjá Rétti barna á flótta, Hallfríður Þórarinsdóttir doktor í menningarmannfræði, Sema Erla Serdaroglu formaður Sólaris og Jasmina Vajzović stjórnmálfræðingur ræða stöðu nýrra Íslendinga, flóttafólks og fólks af erlendum uppruna. Hlynur Hallsson VG-félagi telur ekki ráðlegt að sprengja ríkisstjórnina. Geðheilsa barna verður til umfjöllunar. Þórhildur Ólafsdóttir barnasálfræðingur setur hnífamálið í stærra samfélagslegt samhengi. Ögmundur Jónasson segir okkur frá gagnrýni Alfred de Zayas, prófessors í alþjóðalögum, á veiklað alþjóðakerfið, en de Zayas heldur fyrirlestur á vegum Ögmundar í Þjóðmenningarhúsinu á laugardaginn. Árni Sveinsson leikstjóri og Jón Oddi Víkingsson aka Johnny King tónlistarmaður ræða Kúreka. Og við endum á umfjöllun um dýraníð og dýravernd. Linda Karen Gunnarsfdóttir, formaður Dýraverndarsambands Íslands gagnrýnir sinnuleysi.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí