Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

ESB, öryggisstefna, blaðamenn og Indland

ESB, öryggisstefna, blaðamenn og Indlandarrow_forward

S05 E122 — 06/06/2024

Jón Steindór Valdimarsson formaður Evrópuhreyfingarinnar ræðir kosningar sem hófust í dag til Evrópuþingsins. Helen Ólafsdóttir öryggisráðgjafi ræðir um öryggisstefnu Íslands, sem lituð er hernaðarhyggju. Guðmundur Gunnarsson ræðir eftirmál talningarklúðursins og stöðu fjölmiðlunar og stjórnmála. Flótta fjölmiðlamanna yfir í önnur störf ber á góma og sitthvað fleira. Og Guðjón Bjarnason arkitekt ræðir kosningarnar í Indlandi og það stóra og fjölmenna land.

Fjórða valdið, innflytjendur, stétt, öryggi, óveður og leiklist

Fjórða valdið, innflytjendur, stétt, öryggi, óveður og leiklistarrow_forward

S05 E121 — 06/05/2024

Sverrir Björnsson hönnuður gagnrýnir stóru fjölmiðlana fyrir að hafa verið of hliðhollir Katrínu Jakobsdóttur í kosningunum. Margrét Valdimarsdóttir afbrotafræðingur segir unga innflytjendur ekki tengjast glæpum umfram aðra. Steinunn Gunnlaugsdóttir myndlistarkona opnar sýningu í Gluggagalleríinu Stétt. Hilmar Þór Hilmarsson ræðir um mun á áherslum nýkjörins forseta og stjórnvalda varðandi Úkraínustríðið. Sigurður Erlingsson landvörður segir frá vetri í júní. Og Níels Thibeaud Girerd kallaður Nilli mælir með leiklistarkennslu í grunnskólum.

Vg, Wolt, almannatryggingar, UK og Úkraína

Vg, Wolt, almannatryggingar, UK og Úkraínaarrow_forward

S05 E120 — 06/04/2024

Hvað verður um VG eftir brottför Katrínar Jakobsdóttur? Getur flokkurinn risið upp úr 3,3% fylgi? Vg-liðarnir Gústav Adolf Bergmann Sigurbjörnsson nýdoktor, Sunna Valgerðardóttir starfsmaður þingflokksins og Stefán Pálsson varaborgarfulltrúi ræða um stöðu Vg. Saga Kjartansdóttir og Halldór Oddsson starfsmenn lögfræði- og vinnumarkaðssviðs Alþýðusambandsins segja okkur frá Wolt, sem flest bendir til að svíni á starfsfólki sínu. Við höldum áfram umræðu um breytingar á lögum um almannatryggingar. Nú eru komið að þingmönnum að ræða kosti og galla frumvarpsins. Jóhann Páll Jóhannsson Samfylkingu, Inga Sæland Flokki fólksins og Steinunn Þóra Árnasdóttir Vg. Guðmundur Auðunsson hagfræðingur og fréttaritari Samstöðvarinnar í London fjallar um kosningar í Bretlandi og Hilmar Þór Hilmarsson prófessor fjallar um Úkraínustríðið og öryggismál Evrópu og Íslands. 

Lögregluárás, elítur, þingið og heimilisofbeldi

Lögregluárás, elítur, þingið og heimilisofbeldiarrow_forward

S05 E119 — 06/03/2024

Við ræðum við fólk sem tók þátt í friðsamri mótmælastöðu við ríkisstjórnarfund en varð fyrir piparúðaárás lögreglunnar. Qussay Odeh, Christa Hlín Lehmann, Daníel Þór Bjarnason, Lukka Sigurðardóttir, Pétur Eggerz og Bergþóra Snæbjörnsdóttir. Við förum síðan í uppgjör á umræðunni fyrir forsetakjör. Nanna Hlín Halldórsdóttir heimspekingur, Björn B. Björnsson kvikmyndagerðarmaður, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri og Magnea Marinósdóttir alþjóðastjórnmálaræðingur ræða deilur um elítur, valdastéttir og kvenhatur. Í ÞINGINU í umsjón Björn Þorláks kryfja þrír þingmenn þingmál komandi daga og áhrif forsetakjörs á stjórnmálin: Vilhjálmur Árnason í Sjálfstæðisflokki, Björn Leví Gunnarsson Pírötum og Sigmar Guðmundsson í Viðreisn fara yfir málin. Loks ræðum við samspil jafnréttis og kynbundins ofbeldis við Lindu Dröfn Gunnarsdóttur framkvæmdastýru Kvennaathvarfsins og Ingveldi Ragnarsdóttur ráðgjafi og vaktstýru athvarfsins.

Helgi-spjall: Þórir Baldursson

Helgi-spjall: Þórir Baldurssonarrow_forward

S05 E118 — 06/01/2024

Gestur okkar í Helgi-spjalli er Þórir Baldursson tónlistarmaður úr Keflavík sem hefur víða farið um lendur tónlistarinnar. Hann segir okkur frá uppruna sínum, æsku, ferli, áföllum og uppgötvunum.

Vikuskammtur: Vika 22

Vikuskammtur: Vika 22arrow_forward

S05 E117 — 05/31/2024

Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Estrid Þorvaldsdóttir jógakennari, Hermann Stefánsson rithöfundur, Ingvar Þór Björnsson útvarpsmaður og María Lilja Ingveldar-Þrastardóttir Kemp blaðakona og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af jarðhræringum og skjálftum í menningarheimum, kosningabaráttu, stríði, mótmælum og piparúða.

Forsetakjör

Forsetakjörarrow_forward

S05 E116 — 05/30/2024

Við förum yfir skoðanakannanir dagsins og kappræður með góðum gestum. Fyrst koma Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri, Þröstur Ólafsson hagfræðingur, Guðrún Jónsdóttir fyrrum talskona Stígamóta og Kristín Vala Ragnarsdóttir prófessor og síðan Hjálmar Gíslason framkvæmdastjóri, Sara Óskarsson listakona, Margrét Tryggvadóttir rithöfundur og Karl Héðinn Kristjánsson formaður Roða, félags ungra sósíalista. 

Forsetakjör, Nató og kolefnalosun

Forsetakjör, Nató og kolefnalosunarrow_forward

S05 E115 — 05/29/2024

Við byrjum á umræðu um forsetakosningar og elítuna: Hallgrímur Helgason rithöfundur og málari, Oddný Eir Ævarsdóttir heimspekingur og rithöfundur, Magnús Scheving höfundur, leikstjóri og framleiðandi og Ester Bíbí Ásgeirsdóttir tónlistarkona ræða átökin í kringum kosningarnar, sem herðast og herðast. Við ræðum öryggisstefnu íslands í háskalegum heimi við Viðar Þorsteinsson framkvæmdastjóra félagssviðs Eflingar, Tjörvi Schiöth doktorsnema og Andrés Ingi Jónsson þingmann Pírata. Og í lokin kemur Árni Finnsson formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands og fjallar um afleiðingar þess að ekkert plan sé í gangi hjá íslenskum stjórnvöldum hvað varðar losun gróðurhúsalofttegunda.

Bein útsending af fundi frambjóðenda í Kolaportinu

Bein útsending af fundi frambjóðenda í Kolaportinuarrow_forward

S05 E114 — 05/28/2024

Forsetaframbjóðendurnir Ásdís Rán Gunnarsdóttir, Ástþór Magnússon, Helga Þórisdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og Viktor Þórisson, sem kalla sig Meistaradeildina, halda sameiginlegan framboðsfund og kvöldvöku í Kolaportinu. Samstöðin sendir beint út frá fundinum á venjulegum útsendingartíma Rauða borðsins. Fundarstjóri er Margrét Örnólfsdóttir.

Kosningar, snjóflóð, friður, fátækt og kynjaþing

Kosningar, snjóflóð, friður, fátækt og kynjaþingarrow_forward

S05 E113 — 05/27/2024

Baldur Héðinsson stærðfræðingur segir okkur frá kosningaspá sinni og Þorkell Helgason stærðfræðingur og Þorvaldur Gylfason hagfræðingur segja okkur frá írsku aðferðinni í kosningum, sem meðal annars kemur í veg fyrir að óvinsæll frambjóðandi nái kjöri með takmarkað fylgi. Fjallið það öskrar er heimildarmynd um snjóflóðið á Súðavík. Hafsteinn Númason eftirlaunamaður, Daníel Bjarnason leikstjóri og Aron Guðmundsson meðframleiðandi og höfundur samnefndra útvarpsþátta koma að Rauða borðinu og ræða myndina og hina hryllilegu atburði. Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi ræðir við okkur um frið og stríðsógn og Ásta Lóa Þórsdóttir þingkona um fátækt. Í lokin koma þær Sonja Þorbergsdóttir formaður BSRB og Tatjana Latinovic formaður Kvenréttindafélagsins og segja okkar frá kynjaþingi og spá í stöðuna á kvenfrelsisbaráttunni.

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí