Rauða borðið

Róttæk samfélagsumræða

Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.

Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson

Þættir

Helgi-spjall: Inga Sæland

Helgi-spjall: Inga Sælandarrow_forward

S05 E112 — 05/25/2024

Inga Sæland formaður Flokks fólksins kemur að Rauða borðinu og segir frá ætt sinni og uppruna, æsku og mótunarárum á Ólafsfirði, harðri lífsbaráttu og áföllum, en ræðir líka smá pólitík í lokin.

Vikuskammtur: Vika 21

Vikuskammtur: Vika 21arrow_forward

S05 E111 — 05/24/2024

Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Hildigunnur Sverrisdóttir arkitekt, Ásgeir Brynjar Torfason ritstjóri Vísbendingar, Halldóra Geirharðsdóttir leikkona og Lára Zulima Ómarsdóttir almannatengill og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af baráttunni um Bessastaði, stríðum og átökum.

Forsetakjör, smáríki, húsaleigulög og sinfónía

Forsetakjör, smáríki, húsaleigulög og sinfóníaarrow_forward

S05 E110 — 05/23/2024

Við ræðum forsetakjör við Rauða borðið. Jakob Bjarnar Grétarsson blaðamaður, Sigtryggur Ari Jóhannsson ljósmyndari og Helga Arnardóttir fjölmiðlakona ræða ýmsar hliðar baráttunnar. Síðan kemur Baldur Þórhallsson forsetaframbjóðandi og ræðir um stöðu smáríkis í viðsjárverðum heimi. Steinunn Þóra Árnadóttir formaður velferðarnefndar ræðir frumvarp um húsaleigulög, sem leigjendur segja lítil hænuskref í átt að réttlæti. Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur vakið athygli og verið til umræðu í erlendum fréttamiðlum síðustu vikur. Lára Sóley Jóhannsdóttir framkvæmdastjóri kemur og segir okkur hvers vegna.

Fátækt, forsetakjör, fiskar og auðlindir

Fátækt, forsetakjör, fiskar og auðlindirarrow_forward

S05 E109 — 05/22/2024

Við ræðum við tvö forsetaframbjóðendur um mál sem þeir hafa lagt áherslu á. Halla Tómasdóttir segir okkur hvers vegna samfélagið er á villigötum og frá þeirri vakningu sem hún telur nauðsynlega. Halla Hrund Logadóttir segir okkur frá sinni sýn á auðlindir þjóðarinnar og hvers vegna við þurfum að móta stefnu um nýtingu þeirra. Í byrjun þáttar kemur Guðmunda Greta Guðmundsdóttir öryrki að Rauða borðinu, en hún hefur lýst kjörum öryrkja í pistlaskrifum. Útgerðarmenn og sjómenn segja að fiskurinn sé að horast upp. Við fáum Jón Kristjánsson til að segja okkur hvað það merkir. Og Benedikt Sigurðarson kemur við og ræðir auðlindanýtingu, til sjávar og sveita en ekki síst í ferðaþjónustu.

Forsetakosningar og stúdentauppreisn

Forsetakosningar og stúdentauppreisnarrow_forward

S05 E108 — 05/21/2024

Forsetakosningarnar setja sitt mark á þátt kvöldsins. Fyrst koma þau Sigmundur Ernir Rúnarsson skáld og blaðamaður, Ásgeir Friðgeirsson PR-maður, Guðmundur Andri Thorsson rit- og pistlahöfundur og Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir prófessor og fyrrum blaðakona og ræða kosningabaráttuna frá ýmsum sjónarhólum. Jón Gnarr forsetaframbjóðandi svarar til um hvað hann á við þegar hann segist vilja beita sér gegn leiðindum. Við sláum á þráðinn til Ísabellu Lenu Borgarsdóttur í Nijmegen í Hollandi þar stúdentar hafa reist tjaldbúðir á háskólalóðinni til stuðnings Palestínu. Og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir forsetaframbjóðandi svarar til um hvað hún á við þegar hún segir að forseti verði að standa gegn þeim sem eiga og ráða.

Aukaþáttur – Grindavík

Aukaþáttur – Grindavíkarrow_forward

S05 E107 —

Þeir Sigurbjörn Daði Dagbjartsson blaðamaður, Aðalgeir Jóhannsson netagerðanmaður og Magnús Gunnarsson trillukarl eruí hópi örfárra íbúa sem sem enn gista í Grindavík og hafa engin áform uppi um að gefast upp. Þeir eru mjög ósáttir við margt og ræða hispuslaust tilfinningar sínar  pg skort sem þeir upplifa á mannlegu viðmóti í samtali við Björn Þorláks.

Helgi-spjall: Harpa Njáls

Helgi-spjall: Harpa Njálsarrow_forward

S05 E106 — 05/18/2024

Harpa Njáls félagsfræðingur er gestur Helgi-spjalls, segir okkur frá baráttu sinni fyrir að samfélagið og stjórnmálin horfist í augu við fátæktina en líka frá uppvexti sínum á Suðureyri við Súganda, áföllum sem riðu yfir, basli og erfiðri lífsbaráttu, þátttöku sinni verkalýðsbaráttu og annarri baráttu fyrir betra lífi lágstéttanna.

Vikuskammtur: Vika 20

Vikuskammtur: Vika 20arrow_forward

S05 E105 — 05/17/2024

Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Guðrún Þórsdóttir stjórnarkona í Geðhjálp, Svavar Halldórsson stjórnmála- og stjórnsýslufræðingur, Vera Wonder Sölvadóttir kvikmyndagerðarkona og Magnús Scheving höfundur, leikari og framleiðandi og ræða fréttir vikunnar sem einkenndust af baráttunni um Bessastaði, tröllum og tilfinningalegum gusum, grimmd gagnvart flóttakonum, bókabrennum og stríðum.

Breiðholt, dauðinn, karlmennska og fótbolti

Breiðholt, dauðinn, karlmennska og fótboltiarrow_forward

S05 E104 — 05/16/2024

Helgi Gíslason, skólastjóri Fellaskóla, kemur að Rauða borðinu og segir okkur frá skólanum og hverfinu þar sem er hæst hlutfall innflytjenda og fólks sem ekki talar íslensku heima. Salvör Nordal umboðsmaður barna er heimspekingur sem fjallað hefur um heilbrigðiskerfið. Hún ræðir við okkur um um dánaraðstoð. Óbærilegur léttleiki knattspyrnunnar er leikrit um karlmennsku og fótbolta. Leikararnir Sveinn Ólafur Gunnarsson, Ólafur Ásgeirsson og Albert Halldórsson og söngvarinn Valdimar Guðmundsson taka þátt í þeirri sýningu og koma til okkar til að ræða hana, karlmennsku og fótbolta.

Forseti, hommar, húsaleiga og Breiðholt

Forseti, hommar, húsaleiga og Breiðholtarrow_forward

S05 E103 — 05/15/2024

Við byrjum á umræðu um forsetakosningarnar. Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, Björn Þorláksson og Sigurjón Magnús Egilsson, gamalreyndir blaðamenn koma að Rauða borðinu og fjalla um kosningabaráttuna. Bjarni Snæbjörnsson leikari setti upp leikrit um eigin för sín út úr skápnum, Góðan daginn Faggi. Nú hefur hann skrifað bókina Mennsku um sama efni. hann segir okkur sína sögu. Í þinginu er frumvarp um breytingar á húsaleigulögum. Bjarni Þór Sigurðsson formaður húsnæðisnefndar VR og Guðmundur Hrafn Arngrímsson formaður Leigjendasamtakanna greina frumvarpið út frá hagsmunum leigienda og almennings, en frumvarpið er mest sniðið að hagsmunum leigusala. Kennararnir Maria Sastre og Marta Wieczorek búa í Breiðholti og eru þar menningarsendiherrar. Þær segja okkur frá hverfinu sínu og þeim breytingum sem það gengur í gegnum. 

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí