Rauða borðið
Róttæk samfélagsumræða
Við Rauða borðið er rætt um málefni dagsins, hagsmunamál almennings, samfélagið sem við eigum saman og hvernig við getum byggt það upp á grunni réttlætis, mannvirðingar, jöfnuðar og samkenndar.
Umsjón: Gunnar Smári Egilsson, Björn Þorláksson, María Lilja Ingveldar Þrastardóttir Kemp, Sigurjón Magnús Egilsson
Klippur
arrow_forward
Hugrekki
arrow_forward
Hugrekki Heimis til fyrirmyndar
arrow_forward
Er besta vörn íslenskrar menningar að hingað komi fólk, áhrif og hugmyndir sem víðast að?
Kristín Gunnlaugsdóttir myndlistarkona, Benedikt Erlingsson leikstjóri, Björn Þorsteinsson heimspekingur og Gígja Sara Björnsson sviðshöfundur ræða stöðu íslenskrar menningu við Gunnar …
arrow_forward
Er kynjastríðið komið út í skurð?
Helga Arnardóttir kvikmyndagerðarkona, Hlédís Maren Guðmundsdóttir félagsfræðingur, Frosti Logason ritstjóri og Reynir Lyngdal leikstjóri ræða við Gunnar Smára um norsku …
Þættir
Forseti fólks eða elítu, andmannúð, kennarar í vígahug, sjókvíar og fjölpóla heimurarrow_forward
Eru forsetakosningarnar átök milli elítunnar og fólksins? Arnar Þór Jónsson forsetaframbjóðandi svarar því. Íslensk stjórnvöld fluttu úr landi fórnarlömb mansals, sem þau höfðu hent á götuna fyrir tæpu ári. Drífa Snædal talskona Stígamóta reynir að ráða í hver sé ástæðan. Magnús Þór Jónsson formaður Kennarasambandsins ræðir stöðu kennara. Fara þeir í verkföll í haust? Jón Örn Pálsson sjávarútvegsfræðingur telur að við eigum að byggja upp sjókvíaeldi en alls ekki eins og gert hefur verið. Og Hilmar Þór Hilmarsson prófessor óttast kjarnorkustríð ef bandaríkin og Vesturveldin halda óbreyttri stefnu.
Kaupmáttur, vextir, þingið, fjölmiðlar og Natóarrow_forward
Hagráð verkalýðsins kemur að Rauða borðinu: Róbert Farestveit hagfræðingur Alþýðusambandsins, Vilhjálmur Hilmarsson hagfræðingur BHM og Stefán Ólafsson sérfræðingur Eflingar taka stöðuna á vaxta stefnu Seðlabankans og efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og velta fyrir sér hvort forsendur kjarasamninga muni halda. Þórunn Sveinbjarnardóttir og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir settust saman á þing fyrir 25 árum, árið 1999. Björn Þorláks fær þær í heimsókn í Þingið og líka tvo blaðamenn sem nýverið réðu sig í þjónustu þingflokka; Atla Þór Fanndal starfsmann Pírata og Sunnu Valgerðardóttir starfsmann Vg. Í lokin kemur Hilmar Þór Hilmarsson prófessor og ræðir varnar- og öryggisstefnu stjórnvalda út frá yfirlýsingum Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra.
Helgi-spjall: Fidaarrow_forward
Fida Abu Libdeh er frumkvöðull, palestínskur Íslendingur, sem ólst upp í Jerúsalem en kom hingað ung kona. Hún segir okkur frá ætt sinni og uppruna, æsku og mótun, reynslu hennar sem innflytjandi á Íslandi og hvernig henni tókst að yfirvinna margvíslega erfiðleika.
Vikuskammtur: Vika 19arrow_forward
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Anna Kristín Blöndal Jóhannesdóttir hjúkrunarfræðingur, Lóa Björk Björnsdóttir útvarpskona, Margrét Hugrún Gústavsdóttir Björnsson verkefnastjóri við HÍ og Þórarinn Hjartarson hlaðvarpsstjóri og ræða fréttir vikunnar sem voru markaðar af baráttunni um Bessastaði, af þjóðarmorði á Gaza, háum vöxtum og deilum um frammistöðu fjölmiðla og stjórnmálafólks.
Vextir, kynlaust mál og samfélagsmál við eldhúsborðiðarrow_forward
Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins er agndofa yfir að Seðlabankinn lækkar ekki vexti. Hann hvetur til fjöldamótmæla við Seðlabankann. Við fáum Völu Hafstað, umtalaðasta greinahöfund dagsins, til okkar en hún hafnar kynhlutleysi íslenskunnar. Í lokin fáum við hjónin Helgu Völu Helgadóttur og Grím Atlason og dóttur þeirra, Ástu Júlíu Grímsdóttur körfuboltakonu, til að segja okkur frá hvernig rætt er um samfélagsmál við eldhúsborðið á þeirra heimili, til dæmis hvernig þar er nú rætt um forsetakosningar.
Ráðherra, ópera, góðverk, kynslóðir og forsetiarrow_forward
Guðmundur Ingi Guðbrandsson formaður Vg og félagsmálaráðherra kemur að Rauða borðinu og ræðir um breytingar á almannatryggingum og eilítið um pólitík. Þórunn Gréta Sigurðardóttir tónskáld, Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir leikstjóri og Herdís Anna Jónasdóttir sópran ræða við okkur um Óperuna hundrað þúsund og Jóhanna Engilráð Hrafnsdóttir, Salvör Árnadóttir og Vésteinn Gunnarsson nemendur í Hagaskóla um samfélagslega ábyrgð. Einar Lövdahl Gunnlaugsson skrifaði bókina Gegnumtrekkur sem Hallgrímur Helgason las. Þeir koma til okkar og ræða bókina, kynslóðir, karlmennsku og margt annað. Í lokin segir Viktor Traustason okkur frá forsetaframboði sínu.
Átök í þinginu, auðlindir, Gaza og maður í framboðiarrow_forward
Björn Þorláks fær fjóra þingmenn og einn varaþingmann til að ræða málin í Þinginu, þar sem einn þingmaður ásakar annan um að vera eitrið sem hafi átt að uppræta. Þingmennirnir Jódís Skúladóttir frá Vg, Andrés Ingi Jónsson frá Pírötum, Dagbjört Hákonardóttir úr Samfylkingunni og Ingibjörg Isaksen frá Framsókn og Brynjar Níelsson varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins takast á. Þorvaldur Gylfason prófessor gagnrýnir frumvarp um lagareldi af ákefð og ekki síður tilraunir Katrínar Jakobsdóttur til að breyta stjórnarskránni. Fida Abu Libdeh orkuumhverfistæknifræðingur og frumkvöðull er íslenskur Palestínumaður og ræðir við okkur um ástandið á Gaza og afstöðu íslenskra stjórnvalda. Í lokin fáum við forsetaframbjóðanda að Rauða borðinu. Eiríkur Ingi Jóhannsson rafvirki segir okkur hvers vegna hann vill verða forseti.
Helgi-spjall: Friðrik Þórarrow_forward
Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri og sagnamaður kemur í Helgi-spjall og segir frá foreldrum sínum, hverfinu og kynslóðinni sem hann spratt af.
Vikuskammtur: Vika 18arrow_forward
Í Vikuskammt við Rauða borðið í dag koma þau Hrönn Sveinsdóttir bíóstjóri, Freyr Eyjólfsson tónlistarmaður, Ellen Kristjánsdóttir söngkona og Jón Ferdínand Estherarson blaðamaður og ræða fréttir vikunnar sem voru litaðar af mikilli umfjöllun um forsetakosningar og lítilli um Júróvision, af deilum um hver ætti að eiga firðina, af landrisi á Reykjanesi og pólitísku sigi Vg.
Kennarastofan á Bifröst, Atli Örvars, strandeldi og vinstriðarrow_forward
Við byrjum á því að heyra hvernig kennarastofan á Bifröst ræðir um landsins gagn og nauðsynjar. Dr Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, prófessor og forseti félagsvísindadeildar; dr. Njörður Sigurjónsson, prófessor og fagstjóri i menningarstjórnun; dr. Magnús Árni Skjöld, dósent og fagstjóri stjórnvísinda; og Anna Hildur Hildibrandsdóttir, lektor og fagstjóri skapandi greina komaað Rauða borðinu. Við sláum á þráðinn til Atla Örvars sem nýverið vann til Bafta-verðlauna og ræðum við Jóhannes Sturlaugsson líffræðing um strandeldi. Í lokin ræðum við um pólitík og vinstrið sérstaklega við Rósu Björk Brynjólfsdóttur sem bæði hefur setið á þingi fyrir Vg og Samfylkingu.