„Allt í klessu“ – Á meðan stjórnin sefur fæst Alþingi við mál sem drepast í nefndum

Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingar, hóf umræðu á þingi í dag, miðvikudag, um iðjuleysi ríkisstjórnarinnar. Yfirskrift umræðunnar var „Framlagning stjórnarmála.“ Jóhann Páll sagði að um síðustu helgi hefði ríkisstjórnin haldið blaðamannafund „til að tilkynna að ríkisstjórn Íslands væri ekki sprungin, þau vilja halda áfram vegna stórra áskoranna og fjölmargra verkefna,“ eins og ráðherrar hefðu orðað það. „En hvaða verkefna?“ spurði þingmaðurinn.

Þingið heldur uppi dagskrá með málum sem drepast í nefndum

„Síðasta löggjafarþing var eitt það verkminnsta í manna minnum,“ sagði Jóhann Páll í ræðunni. „Málin skiluðu sér seint og illa og á endanum náðist sátt milli stjórnarflokkanna um fátt annað en að slátra málunum þeirra. Og nú er komin upp aftur þessi staða að ríkisstjórnin hefur varla nein mál til að mæla fyrir. Í dag eru bara þingmannamál á dagskrá, mál sem allir vita að verða ekki að lögum og verkefnastaðan er svo fátækleg hjá ríkisstjórninni að það hefur verið biðlað sérstaklega til stjórnarandstöðunnar að halda hér uppi dagskránni með þingmannamálum sem munu svo drepast inni í nefndum.“

Þá spurði Jóhann: „Hvað er eiginlega að frétta? Er kannski tímabært að hæstvirtur forseti banki aðeins í ríkisstjórnina og veki hana, þannig að hún geti farið að koma sér að verki?“

Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, svaraði ræðu þingmannsins með því eiginlega að lofa að verða við beiðninni og banka í ríkisstjórnina. Hann sagði stöðuna „varðandi framlagningu mála“ vera „með svipuðum hætti og var á síðasta ári.“ Hann hefði sjálfur „vakið athygli á því að áform um að mál kæmu fyrr inn en ella hafa ekki enn þá skilað árangri.“ Ábendingunni hefði hann komið á framfæri og myndi „ítreka við hæstvirta ríkisstjórn.“

„Það er ekkert að gerast, forseti“

Það var þá sem Oddný G. Harðardóttir, þingmaður Samfylkingar, tók til máls og lét þau orð falla að á síðasta vorþingi hafi allt farið í klessu: „Vegna þessara orða forseta um að nú sé staðan svipuð og á síðasta þingi er rétt að rifja það upp að á síðasta vorþingi fór allt í klessu. Það fóru engin mál í gegn nema eitt og eitt dagsetningarmál og EES-mál og það var út af deilum á milli stjórnarflokkanna. Maður veltir fyrir sér fyrir hvern þessi kyrrstöðuríkisstjórn starfar. Hver er það sem hagnast á aðgerðaleysinu? Hér er ekki farið í brýn mál sem skipta miklu máli fyrir almenning í landinu.“

Oddný tiltók nánar að til þingsins séu komin 19 stjórnarmál „af þeim 113 sem eiga að koma samkvæmt þingmálaskránni á þessu haustþingi og það eru bara 25 þingfundadagar eftir af haustþingi. 113 mál eiga að koma inn samkvæmt dagskránni, 19 eru komin. Það er ekkert að gerast, forseti.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí