Hiti í kolum tveggja fréttakvenna vegna heitis útvarpsþáttar

Óhætt er að segja að soðið hafi upp úr milli tveggja fjölmiðlakvenna vegna heitis á fréttaþættinum Þetta helst á Rúv.

Hildur Helga Sigurðardóttir segir að Sunna Valgerðardóttir ætti að skammast sín fyrir ritstuld.

Snarpar umræður hafa orðið milli þeirra tveggja á þræðinum Hollvinir Ríkisútvarpsins á facebook.

Sagan hófst með því að Hildur Helga gerði athugasemd við að heiti fréttaskýringaþáttarins  „Þetta helst“ væri stolin nafngift. Um hennar eigið hugverk sé að ræða. Hún hafi verið þátt með þessu nafni hjá Rúv í kringum aldamótin. Enginn hafi rætt við hana áður en nýi þátturinn með hennar heiti fór í loftið. Telur Hildur Helga ólíklegt að enginn hafi vitað að áður hafi verið gerðir þættir undir sama heiti.

Ryskingar verða í kjölfarið. Sunna svarar að Þröstur Helgason, fyrrverandi dagskrárstjóri, hafi ákveðið nafnið á þessum fréttaþætti vorið 2022.

„Skynja má að Hildi Helgu finnist Sunnu skorta auðmýkt í tilsvörum.

„Hvernig væri nú bara að biðjast afsökunar á þessum nafnastuldi, frekar en að búa til einhverjar kjànalegar eftiráskýringar?“ spyr Hildur Helga Sunnu á þræðinum.

„Ert með derring eftir að hafa fengið kurteislega ábendingu,“ segir Hildur Helga.

Aðrir sem taka til máls koma ýmist Sunnu og Þóru til varnar eða spyrja Hildi Helgu hvort hún telji sig hafa einkaeyfi á heiti þáttarins.

„Ég skal ræða þetta mál við dagskrárstjóra Rásar 1, segir Þóra.

Gætu þau ummæli orðið aðdragandi sátta og þýðu.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí