Brynjar Níelsson, líklegur borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í borginni, vill afnema fjölmiðlastyrki ef hann snýr aftur í stjórnmál og lækka opinber framlög til stjórnmálaflokka.
Þetta kemur fram í færslu sem Brynjar setur á facebook.
„Það virðist búið að selja skattgreiðendum að þeir verði að greiða 10 milljarða ári til fjölmiðla annars sé lýðræðið í hættu,“ segir Brynjar og sneiðir að Ríkisútvarpinu.
„Ég er ekki viss um að lýðræðið sé í hættu þótt þeir [skattgreiðendur] fjármagni ekki Orðið á götunni í DV þar sem húskarlinn og auðmaðurinn skiptast á að lýsa andúð sinni á Sjálfstæðisflokknum og bera fyrir sig ónafngreint fólk af götunni. Skattgreiðendur gætu alveg eins fjármagnað lygi mína á fésbókinni enda örugglega meira lesin og nær sannleikanum ef eitthvað er. Hef alveg skilning á því að menn festist í harðlífi og vansæld þegar þeim er hafnað af eigin flokki en við skattgreiðendur eigum að hjálpa þeim með öðru hætti en peningagjöfum,“ segir Brynjar og skýtur á Helga Magnússon eiganda DV og Ólaf Arnarson blaðamann, sem áður gegndi trúnaðarstörfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Brynjar gefur kosningaloforð, sem þó er snúið að sé á færi borgarfulltrúa að efna, að ef hann eigi afturkvæmt í stjórnmál verði það „helsta baráttumál mitt að draga úr eða fella niður fjárframlög til fjölmiðla og ekki síður til stjórnmálaflokka og annarra pólitískra hagsmunasamtaka úti bæ. Þessi fjárframlög eru örugglega vel á annan tug milljarða á ári sem ég get hugsað mér að nýta með skynsamlegri hætti, t.d að bæta þjónustu eða minnka álögur á landsmenn.“
Brynjar ræðir í færslu sinni ekki bakslag lýðræðis ef aðeins hinir auðugustu eiga og reka fjölmiðla. Gríðarlegt tap er sem dæmi á Mogganum sem boðar erindi gegn ESB og hampar kvótakóngum og stórútgerðinni, eigendum blaðsins. Vegna auðs eigendanna og niðurfellinga skulda blaðsins, sem var pólitísk ákvörðun, heldur Mogginn velli og þarf hvorki fjölmiðlastyrk né áskriftarstuðning til að koma út. Öðru máli gegnir um lítinn miðil eins og Samstöðina, þar sem reksturinn stendur jafnvel og fellur með opinberum stuðningi.
„Þessi sjónarmið mín munu örugglega heita hjá ríkisstyrktu miðlunum þjóðernis popúlismi eða öfga hægri mennska. Ég lifi með því,“ segir Brynjar.