Seðlabankinn lækkar vextina ekki neitt, áfram mjög háir raunvextir

Peningastefnunefnd Seðlabankans ákvað að lækka vexti ekkert, þrátt fyrir lækkandi verðbólgu og kjarasamninga sem með sáralitlum launahækkunum. Stýrivextir á Íslandi áfram mjög háir. Ísland er eitt fárra landa með stýrivexti hærri en verðbólgan. Síðasta mæling verðbólgunnar sýndi 6,6% verðbólgu síðustu tólf mánuði. Stýrivextir Seðlabankans gefa því um 2,5% raunávöxtun. Raunávöxtun þeirra vaxta sem almenningur borgar er miklu hærri. Fé mun því áfram streyma frá þeim sem lítið eiga til þeirra sem mikið eiga.

Tilkynning bankans er þessi:

„Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 9,25%.

Verðbólga minnkaði lítillega í febrúar og mældist 6,6%. Undirliggjandi verðbólga hefur einnig hjaðnað en er líkt og mæld verðbólga enn vel yfir verðbólgumarkmiði. Verðbólguvæntingar eru einnig yfir markmiði sem gæti bent til þess að verðbólga verði áfram þrálát.

Nýleg endurskoðun Hagstofu Íslands á þjóðhagsreikningum sýnir að hagvöxtur á síðustu árum var meiri en fyrri tölur bentu til. Spennan í þjóðarbúinu virðist því vera umfram það sem áður var talið. Áfram hægir þó á vexti efnahagsumsvifa enda er taumhald peningastefnunnar töluvert.

Óvissa hefur minnkað eftir undirritun kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Spennan í þjóðarbúinu gæti þó leitt til þess að launaskrið verði meira en ella. Einnig gætu aðgerðir í ríkisfjármálum aukið eftirspurn og verðbólguþrýsting.

Mótun peningastefnunnar á næstunni mun sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí