Ákveðið óvissustig að sögn Bjarna

„Nú verðið þið bara að finna símanúmerið og hringja í hana,“ sagði Bjarni Benediktsson við blaðamenn sem reyndu að fá viðbrögð hans við boðuðum tíðindum dagsins fyrir utan Ráðherrabústaðinn.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sem kann að vera á síðasta starfsdegi ræddi ekki við blaðamenn að loknum rikisstjórnarfundi heldur lét sig hverfa.

Bjarni Benediktsson segir ákveðið óvissustig uppi.

Talið er mögulegt að Katrín sé á leið á fund með Guðna Th forseta  og muni svo greina blaðamönnum frá því að hún ætli að bjóða sig fram til forseta.

Sjálf sagði Katrín þegar hún yfirgaf fundinn ekki annað en að hún væri á leið upp í stjórnarráð.

Mynd: Skjáskot af Vísi

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí