Hin auðugu nýta fjármagn sitt sjaldnast til að búa til eitthvað nýtt
„Það sem kallað hefur verið afiðnvæðing Vesturlanda hefur leitt til þess að fjármagn hinna auðugu leitar fyrst og fremst inn á þau svið samfélagsins sem ríkisvaldið, almannavaldið, sá um áður (skólar, heilbrigðiskerfi, samgöngur, grunninnviðir).
Hin auðugu nýta fjármagn sitt sjaldnast til að búa til eitthvað nýtt, það gera hin blönku. En þau vilja kaupa upp það sem fyrir er eða koma sér fyrir í geirum sem aðrir hafa mótað; kaupa upp fyrirtæki og steypa saman eða teygja sig inn í opinbera þjónustu og innviði, sem áður voru almannaeign.
Einkavæðing og útvistun grunnkerfa er því ekki drifin áfram af hagkvæmni, kenningum um að einkaaðilar séu betri í að reka þessi kerfi en opinberir (sem er alls ekki) heldur er drifkrafturinn sá að einkafjármagnið verður að finna sér leið til að ávaxta auð sinn. Þegar maður selur lýsisverksmiðju þarf maður að ávaxta féð og líklega er auðveldast að yfirtaka sneið af opinberum rekstri. Það er áhættuminnst.“
-gse
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.
Þitt framlag skiptir máli.
Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward