Lokun barnadeildar geti kostað mannslíf

Meðferðardeild Stuðla fyrir börn og unglinga verður lokað í fjórar vikur í sumar frá 10. júlí til 8. ágúst.

Á deildinni er meðhöndlaður hegðunar- og fíknivandi barna, sérhæft úrræði sem hefur skipt sköpum fyrir margar fjölskyldur að sögn aðstandenda.

Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, segir að lokunin til marks um brothætta þjónust við fólk á öllum aldri sem glímir við fíknisjúkdóm.

„Þær stofnanir sem veita þessa þjónustu, sem getur skilið á milli lífs og dauða, eru svo fjársveltar að þær þurfa að loka á sumrin,“ segir Sigmar.

Sem eykur enn á vanda sem fyrir var mikill að sögn Sigmars.

„Biðlistarnir lengjast, álagið eykst á kerfið og þjónusta versnar mikið. Sumar stofnanir eru svo mikilvægar að þær eiga skilyrðislaust að vera opnar árið um kring. Engar undantekningar. Það gildir um meðferðardeild Stuðla. Þetta er sorglegt sinnuleysi,“ segir þingmaðurinn.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí