Óvissa vegna hvítasunnuhrets

Veðurspáin fyrir Vestfirði og Norðurland er kaldaranaleg þá miklu ferðahelgi sem fram undan er um hvítunnu. Ísköld háloftalægð tekur á föstudag strikið yfir sunnanvert Grænland og stefnir á Vestfjarðakjálkann. Lægðin heldur svo áfram til austurs fyrir norðan land.

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir á vef sínum blika.is að mjög kólni við þetta um tíma. Verði líklega slydda og föl á fjallvegum og hálka norðanlands niður fyrir miðjar hlíðar á föstudagskvöld og aðfaranótt laugardags. Slagar nærri að hægt sé að kalla kuldatunguna hvítasunnuhret að sögn veðurfræðingsins.

„Rétt að vera á varðbergi – ekki alltaf kurteisisheimsóknir úr þessari áttinni á vorin,“ segir Einar.

En svo hlýnar aftur fljótt. Ekki síst sunnan heiða með talsverðri rigningu.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí