Viðar hjólar í Vilhjálm – með peninga á heilanum

Félagsfræðingurinn Viðar Halldórsson hjólar af aflefli í Vilhjálm Birgisson verkalýðsleiðtoga á Akranesi en Vilhjálmur styður hvalveiðar Kristjáns Loftssonar. Fyrstu dýrin eru komin í land á þessari vertíð.

Peningar, peningar, peningar!

Viðar segir að Vilhjálmur sé með peninga á heilanum, þeir skipti hann meira máli en allt annað.

„Við eigum að tilbiðja peninga á altari græðginnar. Peningar eru upphaf og endir alls,“ segir Viðar og vitnar til viðtals við Vilhjálm á Vísi þar sem verkalýðsleiðtoginn segir hvalveiðarnar gleðitíðindi, peningar detti ekki af himni ofan.

„Að standa upp fyrir skynugar og varnarlausar skepnur sem hafa enga aðra málsvara, þegar það á að drepa þær á kvalafullan hátt, eru “öfgaskoðanir öfgafólks” – þrátt fyrir að nánast allar þjóðir í heiminum séu á öðru máli og banni hvalveiðar. Heimurinn hefur rangt fyrir sér. Við Íslendingar vitum betur. Við erum mestir og bestir. Að hætta að veiða hvali er eins og taka byssur af Bandaríkjamönnum. Við eigum þetta, við megum þetta,“ segir Viðar um Vilhjálm.

„Hver þarf hugsjónir, manngæsku, og samúð þegar hann getur fengið tvær milljónir á mánuði? Drepum allt sem við getum til að fá peninga. Sýnum enga miskunn. Annars er “illa komið fyrir okkur Íslendingum.”

Rætt var við Valgerði Árnadóttur hvalfriðunarsinnar í gær við Rauða borðið:

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí