Umdeild gjaldtaka hefst við flugvelli í dag
Þeir sem hafa þurft að nýta innanlandsflugið geta frá og með deginum í dag kvatt þau þægindi sem fólust í að þurfa ekki að greiða gjald fyrir að leggja bifreið við Reykjavíkurflugvöll, Akureyrarflugvöll eða Egilsstaðaflugvöll.
Mjög umdeild og óvinsæl gjaldtaka er hafin. Ekki síst er óánægjan mikil úti á landi þar sem fólk býr fyrir við einhver hæstu flugfargjöld heims þegar ferðast þarf innanlands.
Í verðskrá Isavia segir að í Reykjavík verði tvö gjaldsvæði en eitt á hinum flugvöllunum.
Fyrstu 14 klukkustundirnar fríar á tilteknum bílastæðum úti á landi.
Gjaldtaka hefst 15 til 45 mínútum eftir að lagt er við Reykjavíkurflugvöll.
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.
Þitt framlag skiptir máli.
Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward