Krakkar horfa mikið á klám en minna en áður
Þrír af hverjum fjórum strákum á framhaldsskólaaldri og 40 prósent stúlkna á sama aldri hafa horft á klám.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Menntavísindastofnunar um klámáhorf grunn- og framhaldsskólanema á aldrinum 9-18 ára.
Könnunin náði til 53ja grunnskóla og 25 framhaldsskóla.
Á unglingastigi hefur einn af hverjum þremur strákum horft á klám og ein af hverjum tíu stelpum.
Lægra hlutfall bæði stráka og stelpa á unglingastigi og á framhaldsskólaaldri segjast nú hafa horft á klám en 2021 síðast þegar sambærileg könnun var gerð.
Skýrslan er fjórði hluti af sex og byggir á niðurstöðum könnunarinnar „Börn og netmiðlar“ sem Menntavísindastofnun framkvæmdi fyrir Fjölmiðlanefnd.
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.
Þitt framlag skiptir máli.
Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward