Almannavarnir lýsa yfir óvissustigi
Foreldrar barna á grunnskólaaldri í skólum á höfuðborgarsvæðinu hafa fengið tilkynningar frá skólastjórnendum um að kennsla leggist af klukkan 14 í dag vegna óveðurs sem er að bresta á.
Margvísleg alvarleg áhrif gætu orðið af veðurhamnum og hvetur Veðurstofan landsmenn til að fara mjög varlega og halda sér til hlés er kemur að ferðalögum.
Almannavarnir hafa lýst yfir óvissustigi. Samgöngur eru nú þegar að lamast samanber lokanir Holtavörðuheiði og Öxnadalsheiði svo nokkuð sé nefnt.
Appelsínugul viðvörun er um allt land.
Uppfært kl. 14:06: Veðurstofan hefur uppfært spá sína og er appelsínugul viðvörun nú orðin rauð viðvörun eins og sjá má.
Við þurfum á þér að halda
Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.
Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.
Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.
Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.
Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.
Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.
Þitt framlag skiptir máli.
Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward