„Út er komin fróðleg úttekt Viðskiptaráðs á umhverfi fjölmiðla á Íslandi. Ég vildi vekja athygli þingheims og ríkisstjórnarinnar á henni og lesa það sem kemur fram í þessari úttekt með opnum hug. Staða fjölmiðla á Íslandi er sú að þeir búa við stórkostlega brenglað rekstrarumhverfi,“ sagði Snorri Másson Miðflokki á Alþingi.
„Ríkismiðillinn gnæfir yfir öllu, vex ár frá ári eins og púkinn á fjósbitanum á meðan einkamiðlar lepja margir dauðann úr skel. Ríkisvaldið ber mikla ábyrgð á þessu ástandi og ríkisstjórnin getur breytt miklu um stöðu Ríkisútvarpsins en það heyrist ekki mikið af slíkum áformum, ekki einu sinni í hinum víðfrægu hagræðingartillögum ríkisstjórnarinnar þótt sannarlega sé þarna tækifæri til hagræðingar. Ríkisstjórnin treystir sér þó í eitt og það er að hagræða gagnvart frjálsu fjölmiðlunum, lækka styrkina til stærstu miðlanna sem fá um 100 milljónir hvor, mbl.is og Vísir, vel að merkja vinsælli vefir en vefur Ríkisútvarpsins sem fær sextíufalda upphæð á við þessa miðla. Nú á að lækka þennan bútasaumsstyrk til Morgunblaðsins og Vísis en ekki er greint frá því hvers vegna það er gert.
En þó ber svo grunsamlega við um þessar sömu mundir að þingmaður ríkisstjórnarinnar eða úr stjórnarflokkunum fer að tala fjálglega um það í fjölmiðlum að nú þurfi að lækka ríkisstyrkinn til Morgunblaðsins af þeim sökum, eins og hann lýsir því, að þar eru pólitískar áherslur sem eru honum ekki að skapi. Þetta er allt saman áhugavert samhengi ef maður reynir að draga þetta saman og ég held, frú forseti, að engum ætti að dyljast að þetta ástand er í hæsta máta óheilbrigt. Við í Miðflokknum hvetjum til þess að ríkisvaldið dragi úr umsvifum sínum á fjölmiðlamarkaði alfarið. En til vara leggjum við til að fólk fái að ráðstafa því útvarpsgjaldi sem það er neytt til að greiða til þess miðils sem það velur.
Og svo, fyrst maður hefur nú tíma hér undir lokin og er kannski í þeirri stöðu að maður ætti að verða eins og Kató gamli forðum sem sagði í lok hverrar ræðu, og ég geri orðalag hans að mínu og segi í þessu sambandi: (Forseti hringir.) Auk þess legg ég til að fjölmiðlanefnd ríkisins verði lögð niður. Kannski maður ljúki bara hverri ræðu hérna í þinginu, alla vega í störfum þingsins, á þessum orðum til að vekja athygli á fáránleika málsins.“