Bænahúsið í skúrnum við Flugvöllinn

Þingmaðurinn Þorgrímur Sigmundsson tók til tals á Alþingi í dag. Og það vegna árekstra milli leigubílstjóra við Leifsstöð. Isavia setti niður lítið hús eða skúr til hæginda fyrir bílstjórana.

„Í störfum þingsins í gær, nánar tiltekið í óundirbúnum fyrirspurnatíma, gerðist nokkuð sem vart heyrir lengur til undantekninga hér í þessum sal og þá ekki, eðli málsins samkvæmt, hvað síst undir þeim dagskrárlið. Það er sá plagsiður hæstv. ráðherra að reyna ekki einu sinni að svara spurningum sem þingmenn beina til þeirra. Sú var þó sérstaðan í gær hversu grímulaust þetta birtist þingheimi þegar Sigmundur Davíð Gunnlaugsson átti orðastað við fjármálaráðherra, Daða Má Kristófersson. Fyrirspurnin sneri að því ófremdarástandi sem ríkir í starfsumhverfi leigubílstjóra sem er bein afleiðing af þeim breytingum sem gerðar voru af síðustu ríkisstjórn og m.a. Miðflokkurinn varaði mjög sterklega við og taldi einsýnt hverjar afleiðingar það myndi hafa og þær hafa nú raungerst.“

Þorgrímur bætti svo við:

„En þáverandi ríkisstjórn var mjög stolt í nafni frelsis, þ.e. ef villta vestrið er frelsi. Þegar hv. þingmaður og formaður Miðflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, viðraði áhyggjur sínar af því að fámennur hópur bílstjóra hafi yfirtekið húsnæði í eigu ríkisins til bænahalds þar sem allir bílstjórar áttu að hafa aðgang til að matast og komast á snyrtingu þá brá svo við að hæstvirtur ráðherra lét ekki svo lítið að reyna að svara málefnalega heldur sagði: Það stendur ekki til að eigendastefna ríkisins innihaldi sérstakar klásúlur um kaffiskúra. Þvílíkur útúrsnúningur og flótti frá spurningunni vakti enda athygli fjölmiðla. Fréttir eru nú farnir að snúast um flótta ráðherra og það ekki að ósekju, frú forseti.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí