„Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum sem hafa það að markmiði að auka réttarvernd og húsnæðisöryggi leigjenda með því að stuðla að aukinni langtímaleigu og fyrirsjáanleika um breytingar á leigufjárhæð. Frumvarpið hefur það ekki síður að markmiði að bæta upplýsingar um leigumarkaðinn með almennri skráningu leigusamninga og auknu gagnsæi um upplýsingar í þeim samningum,“ sagði Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra þegar hún talaði fyrir nýjum húsaleigulögum.
„Að lokum eru lagðar til breytingar á lögum um tekjuskatt sem leiða af útvíkkun skráningarskyldu leigusamninganna. Lagt er til að skattaívilnun vegna leigutekna leigusala verði háð skráningu leigusamnings í leiguskrá. Breytingin hefur það að markmiði að tryggja rétta skráningu leigusamninga í þá skrá. Í umræddri skattaívilnun felst að ekki skuli reikna tekjuskatt af 50% af tekjum manns af útleigu íbúðarhúsnæðis sem nýtt er til búsetu leigjanda og fellur undir húsaleigulög. Þá er samhliða lagt til að skráning leigusamnings í leiguskrá verði einnig á meðal skilyrða þess að tekjur manna af útleigu íbúðarhúsnæðis sem fellur undir húsaleigulög teljist ekki til atvinnurekstrartekna heldur fjármagnstekna í tilvikum þar sem hinar útleigðu sérgreindu íbúðir eru ekki fleiri en tvær. Hvað varðar áhrif á ríkissjóð er talið að kostnaður vegna skráningar leigusamninga og birtingar upplýsinga úr leiguskrá húsnæðisgrunns, m.a. um markaðsleigu, verði óverulegur,“ sagði Inga í kok ræðu sinnar.