Alþingi: „Hvaða kjaftæði er þetta“

„Þetta eru fínar umræður hér í þingsal, sannarlega, og það þarf engum að koma á óvart að sitt sýnist hverjum um þessi mál. Menn skylmast hér eilítið og vonandi verður það til þess að dýpka skilning fólks á þessu máli og bæta vinnuna þegar inn í nefnd er komið. Ég get hins vegar ekki látið hjá líða að koma hingað upp og bera af mér sakir sem á mig hafa verið bornar, ekki einu sinni heldur tvívegis af háttvirtum þingmanni Jóni Pétri Zimsen, sem kemur hingað upp í andsvörum við háttvirtan þingmann Maríu Rut Kristinsdóttur og heldur því fram að atvinnuvegaráðherra, sú sem hér stendur, hafi lýst því yfir að þessi leiðrétting á veiðigjöldum, sem hún mælir hér fyrir í dag, sé bara fyrsta skrefið á þeirri vegferð að hækka álögur á sjávarútveginn,“ sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra þegar hún bar af sér sakir.

Og hélt áfram:

Háttvirtur þingmaður María Rut Kristinsdóttir kemur hingað upp og mótmælir þessu án þess að háttvirtur þingmaður Jón Pétur Zimsen sjái ástæðu til að draga þetta til baka heldur bítur hann, og ég ætla að leyfa mér að segja það, höfuðið af skömminni með því að koma hingað upp í næstu andsvörum við háttvirtan þingmann Sigurð Inga Jóhannsson og halda því fram fullum fetum að ríkisstjórnin hafi neitað að tala við hagsmunaaðila í greininni. Þetta er rangt og ég myndi segja að háttvirtur þingmaður væri maður að meiri að draga þetta til baka vegna þess að við hljótum að geta gert betur í þessum sal. Ég ætla ekki að sitja undir því að þingmenn sem nenna ekki að vinna vinnuna sína og kynna sér þetta mál ljúgi upp á mig hér í ræðustól Alþingis.“

Jón Pétur zimsen steig í ræðustól og bar einnig af sér sakir:

„Það sem ég hef sagt hér varðandi það að ríkisstjórnin vilji ekki tala við SFS — þau hafa ítrekað leitað eftir fundum.“ (Hér greip Hanna Katrín inn í og sagði: „Og fengið) „…og þeir hafa verið í mýflugumynd. Auðvitað er hægt að deila um það hvort slíkir fundir séu þess eðlis að þeir teljist upplýsingafundir.“ (Hanna Katrín aftur: „Hvaða kjaftæði er þetta?“) „Menn verða að sýna stillingu í þingsal. Ég fer algjörlega með rétt mál þannig að hæstvirtur ráðherra verður líka að þola það að það sé ekki allt sem snúist eftir hugarheimi hans.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí