Einn mildasti apríl sögunnar

Hafi lesendum fundist að tíðin væri sérlega góð og mild undanfarið er sú tilfinning byggð á raunveruleika. Meðalhitinn í Reykjavík í apríl varð um 5,7 gráður eða um tveimur gráðum fyrir ofan meðaltal.

Á Akureyri var einnig mjög milt miðað við meðaltal, um 4,6 gráður.

Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur skrifa á facebook-síðu sinni um þessa bongóblíðu og segir:

„Meðalhiti apríl í Reykjavík hefur þrisvar sinnum síðustu hálfa öldina eða svo farið yfir 6 gráður. Nú síðast 2019 og veit ég að margir muna frábæra vorkomu það ár. Voraði nokkuð skyndilega um 10. apríl og hélst góð tíð fram á sumar. Aðeins sló einu sinni í bakseglin eftir fyrstu viku maí.“

Einar bætir við:

„Hin árin eru 2003 og 1974. Sá apríl, sjálft þjóðhátíðarárið, er talinn sá hlýjasti frá upphafi mælinga á landsvísu. Á Akureyri var meðalhitinn heilar 6,8°C Rétt eins og 2019, snerist til góðrar tíðar snemma í mánuðinum með samfelldum sunnanáttarkafla. Veðráttan segir að tún hafi verið orðin algræn á landinu í lok mánðarins.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí