Innanlandsferð Sinfó – ókeypis tónleikar

Sinfóníuhljómsveit Íslands er á ferðinni um Suðurland þessa dagana. Lokið er tónleikum á Höfn og í Vík en í kvöld verður boðið upp á tónleika í Framhaldsskólanum á Selfossi.

„Okkur er mikið kappsmál að allir landsmenn fái notið tónleika hljómsveitarinnar,“ segir á heimasíðu SÍ.

Um tónsprotann heldur Eva Ollikainen, aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Með í för er Jóhann Kristinsson barítónsöngvari, einn af okkar fremstu söngvurum af yngri kynslóðinni. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir söng sinn — til að mynda Íslensku tónlistarverðlaunin 2024 sem söngvari ársins. Jóhann er búsettur í Þýskalandi, kemur reglulega fram í mörgum af helstu tónleikahúsum Evrópu og hefur sungið með mörgum af fremstu sinfóníuhljómsveitum álfunnar.

„Það er því sérstaklega ánægjulegt að heimsækja Höfn, Vík og Selfoss með glæsilega tónleikadagskrá sem hentar allri fjölskyldunni.“

Aðgangur er ókeypis en margir kórar á Suðurlandi syngja með hljómsveitinni, svo sem Jórukórinn,
Karlakór Hveragerðis, Kirkjukór Selfosskirkju, Sunnlenskar raddir, Söngsveit Hveragerðis, Sönghópur Tónlistarskóla Árnesinga og Kirkjukór Hveragerðis- og Kotstrandarsóknar.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí