Okur og vanbúin Samskeppnisstofnun

Þorsteinn Sæmundsson Miðflokki sagði á Alþingi fyrr í dag:

!Við búum í þjóðfélagi og hagkerfi sem er mjög næmt fyrir verðhækkunum en algerlega ónæmt fyrir verðlækkun. Það virðist vera að hagkerfið okkar lifi sjálfstæðu lífi. Nú höfum við t.d. upplifað það undanfarnar vikur að dollari og fleiri erlendar myntir hafa lækkað gagnvart krónu. Verð á olíu á mörkuðum, heimsmarkaði, hefur lækkað en þess sjást lítil merki hér á Íslandi. Til dæmis má nefna að núna kostar lítrinn af dísilolíu hjá Costco í kringum 284 kr. en sami lítri kostar rúmar 300 kr. hér í Reykjavík nema það sé á einhverjum sérstökum úrvalsstöðvum. Þá lækkar verðið um sirka tíkall. Og síðan úti á landi þá fer þetta náttúrlega versnandi og er í 320 kr. Þetta er eitt af mörgum dæmum um það að við höfum hleypt af stað fákeppni sem engin leið er að ná tangarhaldi á. Nú síðast í morgun kemur hæstv. atvinnuvegaráðherra fram út af því að verðbólga er að hækka og lýsir áhyggjum sínum af því að verð skuli vera að hækka á nauðsynjavörum í styrkingarferli krónunnar o.s.frv. þannig að það er ekki gott í efni.“

Gott og vel. Þorsteinn snéri sér næst að Samkeppnisstofnun sem er undirmönnuð og á liðnum árum hefur verið þrengt að stodnuninni.

„Samkeppnisstofnun á Íslandi tók sér níu mánuði til að skoða majónesmarkaðinn þannig að ef hún ætti að skoða matvörumarkaðinn í heild þá myndi það örugglega taka nokkur ár og þeir hafa ekki fjármagn í það. Það er því vandlifað í þessari veröld okkar og ekki síst vegna þess að allar helstu viðskiptablokkir Íslands eru í eigu lífeyrissjóðanna og eru þess vegna nánast friðaðar í gegnum árin eins og einhverjar fuglategundir þannig að það er ekki gott að komast að þessu. En við eigum ekki að láta þetta yfir okkur ganga vegna þess að fákeppnin heldur áfram og hún leitar á fleiri mið, t.d. raforku. Þannig að við eigum að halda vöku okkar og við eigum að láta vita af því að þetta sé ekki þróun sem sé okkur að skapi og þetta sé ekki þróun sem eigi að líðast.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí