Svandís Svavarsdóttir skrifaði:
Skipun Ingu Sæland húsnæðismálaráðherra á stjórn Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar brýtur gegn jafnréttislögum – og það liggur fyrir. Lögin segja skýrt að a.m.k. 40% stjórnarmanna skuli vera konur.
Þetta er ekki formsatriði heldur skylda. Skipun ráðherrans er í sjálfu sér hluti af kerfisbundinni útilokun kvenna úr ábyrgðarstöðum í nafni „hæfis“ – sem við höfum séð svo oft áður. Eina ferðina enn.
Forsætisráðherra lætur eins og þetta sé flókið eða óljóst – sem það er ekki. Kvenréttindafélag Íslands, Jafnréttisstofa, lagaprófessorar – öll benda á það sama: hér er um að ræða skýrt brot á jafnréttislögum og bakslag í jafnréttisbaráttunni.
„Að okkar mati hafa ekki komið fram nein sannfærandi rök um að víkja frá lagaákvæðinu… þetta er mikil afturför í jafnréttismálum þegar ráðherra gætir ekki að ákvæði um 40% stjórnarmanna.“
– Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands
Við köllum eftir því að þingmenn sem segjast standa með jafnrétti, kvenfrelsi og lýðræði stígi ákveðið fram.
Við krefjumst þess að stjórnarandstaðan:
– kalli eftir því að mistökin verði viðurkennd,
– krefjist að skipunin verði dregin til baka,
– og haldi fast við að ríkisstjórnin virði jafnréttislög – ekki bara í orði, heldur í verki.
Jafnrétti er ekki eitthvað sem hægt er að horfa fram hjá eftir hentugleika.
Jafnrétti er lagaskylda. Og framkvæmdin prófraun á pólitíska ábyrgð.