„Ég átta mig ekki á hvaða ræðu þingmaðurinn var að hlusta á. Mín afstaða er skýr. Ég svaraði þingmanninum með skýrum hætti.“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
„Ég er þeirrar skoðunar að fórnarlömb í þessu máli séu vissulega og sannarlega það fólk sem upplýsingarnar varða en fórnarlömbin í samhengi við traust og trúverðugleika kerfisins eru líka almenningur allur því að svona mál, þau hafa áhrif,“ sagði Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra vegna stuld á gögnum frá héraðssaksóknara og njósna um einstaklinga. Hún var að svara Sigríði Á. Andersen fyrrum dómsmálaráðherra.
„Ég er auðvitað ekki inni í því nákvæmlega hvað er þar til skoðunar en þessir tveir aðilar, opinberir aðilar sem fara með þessi mál, eru með þau til skoðunar núna og ég verð að segja að fyrstu viðbrögð ríkislögreglustjóra t.d., sem fjallaði um málið í gær, um það hvaða augum kerfið lítur þessi mál, finnast mér jákvæð. Mér finnst jákvætt að við heyrum það og skynjum að fólk er slegið yfir því að svona hafi getað hent og sé viljugt til þess og ætli að bregðast við í kjölfarið með raunverulegum og uppbyggilegum hætti,“ sagði ráðherra.
Sigríður Á. Andersen:
„Ég gef afskaplega lítið fyrir það að fólk sé slegið yfir þessu máli. Að sjálfsögðu er fólk slegið. Öll þjóðin er slegin, þó það nú væri. Það er ekki bara eitthvert brot á prinsippum að þessum gögnum hafi verið lekið, eins og héraðssaksóknari, fyrrverandi sérstakur saksóknari, sagði þegar hann var að lýsa þessu máli í þættinum í gær. Brot á prinsippum? Þetta er brot á lögum og þetta er mjög alvarlegt brot. Ég kalla eftir því og geri athugasemdir við það ef hæstvirtur dómsmálaráðherra, sem er ekki bara yfirmaður einnar stofnunar eins og á við um aðra aðra ráðherra og undirstofnanir þeirra — hæstvirtur dómsmálaráðherra er æðsti yfirmaður lögreglunnar. Það er grundvallarmunur á þeirri stöðu og stöðu annarra ráðherra sem fara með yfirstjórnarvald yfir öðrum stofnunum, undirstofnunum sínum. Þess vegna ítreka ég spurninguna hvað hæstv. ráðherra hafi gert til að fá upplýsingar um það hvenær nákvæmlega lögreglan og ríkissaksóknari urðu þess fyrst áskynja að þessi gögn væru þarna úti og um umfang þeirra. Ég bendi á það að mál virðast vera fyrnd hér og það er auðvitað mjög alvarlegt ef það er þannig að þau eru fyrnd vegna vanrækslu embættanna í þessu máli.“
„Ég átta mig ekki á hvaða ræðu þingmaðurinn var að hlusta á. Mín afstaða er skýr. Ég svaraði þingmanninum með skýrum hætti,“ sagði Þorbjörg Sigríður meðal annars í seinna svari sínu.