Sigurður Ingi gagnrýnir sjálfan sig

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknar, sagði á þingi í þessari viku:

„Ég ætla að ræða hér í dag um sjálfstæði þingsins og þar með að einhverju leyti virðingu þess. Frá því að ég var kosinn fyrst inn á þing og til dagsins í dag hefur mér fundist sú þróun vera í gangi að sjálfstæði þingsins hafi minnkað. Staðan á auðvitað að vera þannig að framkvæmdarvaldið kemur með mál til þingsins og afhendir þinginu og þingið tekur við þeim til þess að vinna vinnuna. Á síðustu árum hefur það færst í vöxt að þingið hefur verið að biðja ráðuneytin um að vinna vinnu, til að mynda við nefndarálit og slíkt. Það er eðlilegt að leita til sérfræðinga ráðuneytanna en það getur verið varasamt að fara of langt.“

Þetta sagði sem sagt einn þeirra þingmanna sem einna lengst hefur setið í ríkisstjórn síðasta rúman áratug eða svo. Frá árinu 2013 og nánast til haustsins 2024 hefur Framsókn og þá Sigurður Ingi setið í ríkisstjórn. Með þeim yfirgangi sem hann nú kvartar yfir.

Sigurður Ingi sakast við núverandi ríkisstjórn: „Því miður hefur ný ríkisstjórn og nýr meiri hluti ekki farið nógu vel af stað í að snúa þessari þróun í rétta átt. Ég ætla að nefna hér nokkur dæmi.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí