Fáir þingmenn hafa staðið í eins ströngu og Jens Garðar Helgason varaformaður Sjálfstæðisflokksins. Sem fyrrum formaður félags útvegsmanna og fyrrum varaformaður Samtaka atvinnulífsins stendur hann vaktina þegar þarf. Hann berst um af öllu því afli sem ræður yfir.
Hann hefur ekki fellt margar keilur með innkomu sinni. Framundan er hækkun veiðigjalda. Það er ekki á nokkurn mann leggjandi að verja stærstu, öflugustu og ríkistu útgerðir landsins. Það er sett of mikið á herðar Jens Garðars Helgasonar.
Ég hef fyrir satt að Jens Garðar sé hinn mætasti maður og þægilegur í viðkynningu. Það er bara allt, allt annað. Nú þarf að hann berjast og verjast fyrir opnum tjöldum á Alþingi. Það er nýr völlur fyrir Jens Garðar.
Aðrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins þekkja ekki eins vel til og „nýliðinn“ Jens Garðar. Það er því hans að verjast hinum stóra meirihluta í þinginu. Formaðurnn, Guðrún Hafsteinsdóttir verður að stíga inn í hringinn með varaformanninum. Staðan virðist töpuð.