Lilja Alfreðsdóttir fyrrum utanríkisráðherra skrifaði:
Níu ára barátta að skila sér! Skiptir máli að verja íslenska hagsmuni!
Sem utanríkisráðherra á sínum tíma þótti mér það fjarstæðukennt að einhver verslunarkeðja út í heimi tæki heiti landsins sem sitt eigið í viðskiptum, og reyndi að koma í veg fyrir að íslensk fyrirtæki notuðu nafn landsins í markaðssetningu á sínum vörum og þjónustu.
Það var því rökrétt og eðlileg ákvörðun sem ég tók sem utanríkisráðherra árið 2016 um að hefja málarekstur á hendur Iceland Foods vegna notkunar fyrirtækisins á nafninu Iceland – og sækja það hart. Slík notkun samræmdist að mínum dómi á engan hátt íslenskum hagsmunum.
Almennur dómstóll Evrópusambandsins hefur samþykkt niðurstöðu Hugverkastofu Evrópusambandsins varðandi að Iceland Foods Ltd. getur ekki lengur hindrað að íslensk fyrirtæki auðkenni sig með upprunalandinu við markaðssetningu í Evrópusambandinu á vörum sínum og þjónustu. Málið varðar því grundvallarhagsmuni íslenskra fyrirtækja í utanríkisviðskiptum.
Læt eina góða minningu fylgja með frá málinu.
