Stefán Ólafsson skrifaði:
Þau heimtuðu þingloka-samning um nýtt og gjörbreytt veiðigjaldafrumvarp, undir hótun um málþóf til haustsins, og sögðu svo ríkisstjórnina ekki kunna að gera þinglokasamning!
Þetta var auðvitað fráleitur málflutningur.
Ríkisstjórnir í þingræðisríkjum gera ekki samninga um grundvallarbreytingar á stefnumálum sínum, sem njóta mikils stuðnings hjá kjósenda, nema sitjandi ríkisstjórn hafi ekki meirihluta fyrir málum sínum á þingi.
En stjórn Kristrúnar Frostadóttur hafði góðan meirihluta á þingi. Þegar svo er á stjórnarandstaðan ekki að hafa neina samningsstöðu, nema um aukaatriði. Í ljósi þessa má gagnrýna hversu langt var gengið til móts við stjórnarandstöðuna, með lækkun á gjaldtökunni og með töfum á fullri framkvæmd hinnar nýju gjaldtöku.
Ég held að meirihlutinn eigi að búa sig undir að þurfa að beita 71. greininni oftar í framhaldinu. Viðhorf stjórnarandstöðuflokkanna eru þannig. Þeim finnst að þau eigi að ráða ferðinni þó þjóðin hafi hafnað þeim.