„Ráðgjöf Hafró hefur beðið skipbrot“

Sigurjón Þórðarson, formaður atvinnuveganefndar Alþingis, skrifaði:

„Það er ekki skoðun heldur staðreynd að ráðgjöf Hafró hefur beðið skipbrot. Það hefur komið hér fram áður að ráðlagður þorskafli á næsta ári er miklu minni en þau fyrirheit sem voru gefin þegar endurskoðuð aflaregla var tekin upp árið 2008.

Það sem meirar er að þegar farið er yfir gögn um hvort stór hrygningaststofn skili mikilli nýliðun (3 ára fiski sem er að koma inn í veiðina) þá er augljóst að svo er alls ekki. Hér er um grundvallarforsendu aflareglunnar og ef hún er ekki á rökum reist þá gefur auga leið að bæta má verulega í veiðar.

Nú er talsvert talað um innra og ytra mat í grunnskólum og einkunnaverðbólgur, en enn sem komið er, minna talað um að bæði nýliðar og veiðistofn þorsks gufa hratt upp í stöðugu endurmati Hafró aftur í tímann.

Það er eðlilegt að stjórnvöld kalli með hraði eftir innra mati Hafró og fari síðan ytra mat, en hér um að ræða mál sem skiptir miklu máli fyrir þjóðarhag.“

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí