Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir reynir eins og hún getur að sleikja fýluna úr Miðflokknum. Miðflokkurinn skellti hurðum og sagði sig úr nefnd um varnar- og öryggismál. Nú er reynt að fá flokkinn til að vera með – taka þátt.
Miðflokkurinn bar fyrir sig að starf vinnuhópsins hafi verið of Evrópu miðað. Í frétt á ruv.is segir Þorgerður utanríkisráðherra:
„Sú mikilvæga vinna, hefur að einhverju leyti tafist. Varnar- og öryggismál eru eitthvað sem er mikilvægt að þeir flokkar sem eru á þingi, og eru ekkert að hugsa ósvipað þegar kemur að öryggi og vörnum landsins, nái að sameinast um. Það er að mínu mati mjög mikilvægt. Þannig að mitt ákall er til Miðflokksins að endurskoða þá afstöðu.“
Meira frá ruv.is: Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins, sem sagði sig úr hópnum, segir litlar líkur á að flokkurinn skipi annan fulltrúa. „Mér finnst frekar ólíklegt að það komi til þess.“
Afhverju? „Það í sjálfu sér skiptir ekki máli hver er þar fyrir hönd flokksins, það er sama stefna.“
Spurð hvort ekki sé mikilvægt að allir flokkar eigi fulltrúa í hóp sem þessum segir Ingibjörg svo vera. „Að sjálfsögðu er mikilvægt að allir sitji við borðið. En það eru þarna ákveðnir hlutir sem liggja til grundvallar og það er náttúrulega stefna utanríkisráðherrans – hún ætlar að vaða með okkur inn í Evrópusambandið alveg sama hvað. Þannig horfir þetta við mér og þannig horfir þetta við Miðflokknum. Vinnan í þessum hópi miðaðist allt of miklu leyti við það.“
Við hugsanlega inngöngu í Evrópusambandið? „Aðlögun að því.“
Spurð hvort Miðflokkurinn muni skila einhverskonar séráliti segir Ingibjörg að ekki hafi verið tekin ákvörðun um það. „En við munum taka þá umræðu.“
Þakka ruv.is fyrir þann texta sem ég tek óbreyttan frá þeim.
-sme