Reiði í heitu pottunum vegna Play

Sú íþrótt hefur nú skapast að hvar sem Íslendingar hittast og taka tal saman, skiptist fólk á raunasögum eftir fall Play.

Tugir þúsunda Íslendinga eru sviðnir með einum eða öðrum hætti. Margt vekur gremju. Var haft á orði í heita pottinum í Vesturbæjarlaug í hádeginu að enn færi minna fyrir því á heimasíðu félagsins að Play væri komið á hausinn með þar til gerðum skaða en að þar væru enn auglýst tilboð! (Sjá mynd)

Fræg er sagan af ungu konunni sem var rukkuð um rándýrt aukafargjald vegna þess að handtaskan hennar var millimetrum of stór – hálfri mínútu áður en ferð hennar var aflýst vegna gjaldþrotsins og heildarskaði hljóp á háum fjárhæðum.

Af sorgarsögum dagsins í dag í heita pottinum var meðal annars upplýst að landsþekktur Íslendingur hefði bókað ferð til Spánar og greitt 40.000 krónur fram og til baka. Hann gat ekki hætt við ferðina en að skipta yfir í Icelandair kostaði hann 140.000 krónur aukalega.

Eun saga af mörgum.

Þannig rekur fólk raunir sínar þessa dagana, á óopinberum sem opinberum vettvangi og þungt í fólki.

Eðlilega.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí