21 prósent styðja aðgerðir Trump

Ég setti hér inn fyrir nokkru könnun sem sýndi að aðeins 1/3 Bandaríkjamanna var sáttur við aðgerðir Trump í Venesúela, sem er furðulega lítill stuðningur miðað við yfirlýsingar um hvað þetta var vellukkuð aðgerð, smart og töff. Þetta bendir til að Trump er að missa salinn, eins og sagt er; hann er hættur að geta selt landsmönnum nokkurn hlut (nema síminnkandi hópi ákafra stuðningsmanna).

Hér er könnun frá Bretlandi sem sýnir að 21% Breta styðja aðgerðir Trump og sá stuðningur kemur fyrst og fremst hjá þeim sem gætu hugsað sér að kjósa Umbótaflokk Nigel Farage (Miðflokk þeirra Breta) en 49% þess hóps var ánægður með aðgerðirnar meðan 31% kjósenda Íhaldsflokksins voru sama sinnis, 11% kjósenda Verkamannaflokksins og Frjálslyndra og aðeins 5% Græningja.

Þetta rímar ágætlega við stemminguna í þessum hópi. Hér eru nokkrir ákafir Trumpistar og Miðflokksmenn háværir, aldeilis hissa á að nokkur skuli andæfa Trump. Þeir saka jafnvel aðra um að vera lokaða inn í bergmálshelli, óaðvitandi um að þeir eru sjálfir lokaðir af í þröngum helli þar sem mikill minnihluti landsmanna hangir ogf étur vitleysuna hver upp eftir öðrum.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí