Við lestur boðslistans í fíniveislu Höllu Tómasdóttur forseta Íslands kemur eitt og annað í ljós. Til að mynda að þar er ekki að finna Katrínu Jakobsdóttur fyrrum forsætisráðherra, ekki Jóhönnu Sigurðardóttur fyrrum forsætisráðherra, ekki Sólveig Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar ekki Willum Þór, fyrrvernadi ráðherra og nú formann ÍSÍ, en framkvæmdastjóri þess, Andri Stefánsson er hins vegar á boðslistanum góða.
Þar má finna Höllu Gunnarsdóttur, formann VR, Vilhjálm Birgisson formann Starfgreinasambandsins, Finnbjörn A. Hermannsson forseta ASÍ og Valmund Valmundarson formann Sjómannasambands Íslands.
Fjöldi skólameistara er boðið í veisluna. Þó ekki Ársæli Guðmundssyni í Borgarholtsskóla. Sem dæmi má nefna að settur skólameisrari við Menntaskólann við Hamrahlíð er boðið. En ekki Ársæli.
Fjöldi ræðismanna hinna ýmsu ríkja er boðið. Svo sem:
- Eyþór Arnalds; ræðismanni Botsvana
- Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir; ræðismanni Sviss
- Jón Kristinn Snæhólm; ræðismanni Seychelleseyja
- Knútur Óskarsson; ræðismanni Nepals
- Ari Edwald; ræðismanni Marokkós
- Birgir Þröstur Jóhannsson; ræðismanni Króatíu
- Erlendur Gíslason; ræðismanni Úrúgvæs
- Erna Gísladóttir; ræðismanni Suður-Kóreu
- Guðríður Sgurðardóttir; ræðismanni Perús
- Gunnar Haraldsson; ræðismanni Belgíu
- Gunnar Tryggvason; ræðismanni Tyrklands
- Halldór Guðmundsson; ræðismanni Mexíkós
- Knútur Óskarsson; ræðismanni Nepals
- Kristján Þórarinn Davíðsson; ræðismanni Brasilíu
- Lára B. Pétursdóttir; ræðismanni Dóminíska lýðveldisins
- Margrét S. Björnsdóttir; ræðismanni Nikaragva
- Maria Priscilla Zanoria; ræðismanni Filippseyja
- Marina Isabel Pimenta de Quintanilha e Mendonca ræðismanni Portúgals
- Renáta Ilona Juhász Iván; ræðismanni Ungverjalands
- Rósa Björg Jónsdóttir; ræðismanni Ítalíu
- Runólfur Oddsson; ræðismanni Slóvakíu
- Samír Hasan; ræðismanni Jórdaníu
- Saso Andonov; ræðismanni Makedóníu
- Sigríður Ingvarsdóttir; ræðismanni Búlgaríu
- Sigurður Atli Jónsson; ræðismanni Kasakstans
- Inga Lind Karlsdóttir; ræðismanni Spánar