„Fólk sem hatar lýðræði“

„Í anda hálfvitavæðingar allrar umræðu hefur maður séð ótrúlegustu þvælu um Venesúela. Það er eins og fólk hafi engan þröskuld, sé til í að halda hverju því fram sem því dettur í hug án nokkurra tenginga við raunveruleikann.

Eitt sem fólk étur upp hvert eftir öðru, og hefur líklega upphaflega frá einhverjum af þessum últra hægri hugveitum sem ríkasta fólk í heimi heldur úti til að heilaþvo almennings, er að efnahagsvandi Venesúela stafi að því að Hogo Chávez hafi þjóðnýtt olíuna og því hafi efnahagslífið hrunið. Hið rétta er að olían var þjóðnýtt 1975, landsframleiðsla jókst mikið á valdatíma Chávez (2002-13) og efnahagshrunið kom í kjölfar heimskreppu og viðskiptaþvingana Bandaríkjanna og leppríkja þeirra (fullur þungi 2014 og síðar).

Það er sjálfsagt að gagnrýna stjórnvöld í Venesúela en fólk verður að halda sig við þennan heim, ekki koma með einhverjar handanheimsskýringar af miðilsfundum áróðursmaskína fólks sem hefur auðgast af því að ræna almenning auðlindum, völdum, fé og eignum.

Magnað að fylgjast með skítblönku fólki hlaupa um Internetið til að bera út áróður auðfólks, sem er fullt af mannhatri, fyrirlitningu og illum hug, hatar lýðræði og vill koma hér upp alræði auðvaldsins.“

Grafið er frá Alþjóðabankanum.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí