Hversu margir námsmenn hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota?

Ásthildur Lóa Þórhallsdóttir hefur spurt Loga Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra nokkrar forvitnilegar spurningar.

 1.      Hversu margir einstaklingar með námslánaskuldir voru úrskurðaðir gjaldþrota frá ársbyrjun 2010 til og með 25. júní 2020, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hverjar hafa heimtur krafna vegna námslána verið hjá einstaklingum sem voru úrskurðaðir gjaldþrota á fyrrgreindu tímabili, sundurliðaðar eftir árum? Óskað er eftir því að fram komi upphæðir og fjöldi námslána.
     3.      Hvert er umfang fyrndra krafna vegna námslána á hendur einstaklingum sem voru úrskurðaðir gjaldþrota á fyrrgreindu tímabili, sundurliðað eftir árum? Óskað er eftir því að fram komi upphæðir og fjöldi námslána.
     4.      Hversu margir einstaklingar með námslánaskuldir hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota frá og með 26. júní 2020, sundurliðað eftir árum?
     5.      Hverjar hafa heimtur krafna vegna námslána verið hjá einstaklingum sem hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota frá og með 26. júní 2020, sundurliðaðar eftir árum? Óskað er eftir því að fram komi upphæðir, hlutfall af heildarfjárhæðum og fjöldi námslána.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí