Siv Friðleifasdóttir, fyrrum ráðherra og þingmaður til langs tíma, vill ekki svara því hvort skorað hafi verið á hana að fara í formannsframboð hjá Framsóknarlokknum.
Samstöðin greindi frá því að hreyfing innan flokksins væri ósátt við þá tvo kandídata sem hafa lýst áhuga á formannsframboði, þær Ingibjörgu Isaksen og Lilju Dögg Alfreðsdóttur.
„Ég er ekki að velta neinu slíku fyrir mér,“ segir Siv, spurð hvort hún fari fram.
Fleiri nöfn hafa heyrst hvað varðar áhuga hluta grasrótar flokksins um að fjölga formannskandídötum og hefur nafn Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings verið nefnt í þessu samhengi.
Ljóst er að væringar eru innan flokksins vegna veikrar stöðu. Skiptar skoðanir eru um hver geti bjargað elsta stjórnmálaflokki landsins sem mælist með mjög lítið fylgi jafnt á landsvísu sem og í Reykjavík þar sem styttist í sveitarstjórnarkosningar.
Sigurður Ingi Jóhannsson hefur kynnt að hann láti af störfum sem formaður á flokksþingi um miðjan febrúar.