Páskafrí hjá starfsfólki Samstöðvarinnar

Það hefur ekki farið framhjá hlustendum og tryggum áhorfendum Samstöðvarinnar að veikindi dagskrárgerðarfólks hafa haft áhrif á starfsemina. Tveir af fjórum dagskrárgerðarmönnum hafa að mestu verið í veikindafríi undanfarið. Hefur nokkuð mætt á þeim sem hafa hlaupið í skarðið. Ótrauð heldur Samstöðin áfram að þjónusta áskrifendur, styrktaraðila, velunnara og almenning, enda hefur styrkur okkar fjölmiðilsins í ykkar eigu, aldrei verið meiri og hefur starfsfólk ekki merkt annað en að þjóðfélagslegt mikilvægi dagskrár Samstöðvarinnar sé óvéfengjanlegt.

Til að auka styrk á ný þarf stundum að hvíla lúið starfsfólk sem unnið hefur af fítonskrafti síðustu vikur og mánuði við krefjandi aðstæður. Í ljósi þessa hefur Samstöðin ákveðið að fella niður Rauða borðið, næstu tvær vikur til að bregðast við veikndum lykilstarfsmanna. Ekki verður boðið upp á glænýja þætti við Rauða borðið í dymbilvikunni sem og vikunni eftir páska heldur endursýnt úrvalsefni.

Önnur dagskrá verður á sínum stað.

Við vonum að tryggir notendur okkar sýni þessum aðstæðum skilning og ítrekum að aðeins er um tímabundið úrræði að ræða.

Þá verður ekki boðið upp á Syni Egils næsta sunnudag en helgi-spjallið verður á sínum stað á laugardag, Vikuskammtur í beinni útsendingu á morgun sem og aðrir þættir utan Rauða borðsins næstu vikur.

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí