Samstöðin á fullt að loknu fríi

Eins og glöggir hlustendur og áhorfendur Ríkisútvarpsins hafa tekið eftir hefur mikið verið um endursýningar á þeim bænum í sumar. Rúv hefur úr um 10 milljörðum að spila árlega. Er þá ekki að undra að minni miðlar sem reiða sig nánast alfarið á frjáls framlög almennings hafi minnkað starfsemi í sumarfríinu.

Samstöðin hefur að miklu leyti endurflutt úrvalsefni síðustu vikur. Traustir hlustendur/áhorfendur Samstöðvarinnar fá þakkir fyrir samveruna í sumar og þau sem vilja heyra nýjar raddir ræða samtímann geta glaðst því í kvöld fer í loftið glænýr þáttur af Rauða borðinu, þar sem kennir ýmissa grasa.

Þar má nefna umfjöllun um sólmyrkvann í vikunni, Hinsegin daga, Danmörku, viðhorf Norðmanna til olíu og ESB, greiningu á fullveldishugtakinu og andúð Íslendinga á erlendum yfirráðum.

Rauða borðið fer í loftið að lokinni kynningu og spjalli þáttastjórnenda, klukkan 20 í kvöld og verður alla virka daga frá mánudegi til fimmtudags auk annarra dagskrárliða í viku hverri.

Hér er hægt að fylgjast með sunnudagsþætti gærdagsins á Samstöðinni, Synir Egils:

Við minnum þá sem vilja stuðla að framgangi Samstöðvarinnar á erfiðum rekstrartímum á að hér að neðan er hægt að ganga frá mánaðarlegu framlagi til stuðnings Samstöðinni.

Samstöðin Áskriftir

Við þurfum á þér að halda

Þú getur tekið þátt í að byggja upp öflugum fjölmiðli.

Samstöðin er í eigu lesenda, áhorfenda og áheyrenda. Með því að gerast áskrifandi getur þú orðið félagi í Alþýðufélaginu og þar með eigandi að Samstöðinni.

Áskrifendur borga fyrir það efni sem þeir nota en tryggja í leiðinni að aðrir geti notið þess. Þetta er því ekki eigingjörn áskrift heldur rausnarleg og samfélagslega ábyrg.

Samstöðin byrjaði sem umræðuþættir á Facebook en er nú orðinn að fréttavef, útvarps- og hlaðvarpsþáttum, skoðanapistlum og sjónvarpsdagskrá.

Við trúum að Samstöðin skipti máli fyrir samfélagið, að það sé þörf fyrir róttæka umræðu um málefni sem snerta fólk út frá sjónarhóli og hagsmunum almennings.

Ef þú ert sama sinnis skaltu endilega gerast áskrifandi að Samstöðinni og þar með einn af eigendum hennar.

Þitt framlag skiptir máli.

Ég vil styrkja Samstöðina arrow_forward

Rauða borðið
í beinni
Rauða borðið, 24. maí